Karlmaður búsettur í New Jersey í Bandaríkjunum segir farir sínar ekki sléttar eftir að honum var vísað frá borði úr flugvél United Airlines á dögunum vegna stuttermabols sem hann klæddist.
Atvikið átti sér stað þann 4. Júní síðastliðinn þegar maðurinn, Sam Saadeh, var á leið með flugi frá Atlanta til Newark Liberty-alþjóðaflugvallarins í New Jersey.
Bolurinn sem hann klæddist og fór fyrir brjóstið á að minnsta kosti einum starfsmanni flugfélagsins vísaði til árása Ísraela á Palestínu og var með áletruninni: „Bombing kids is not self defense“ („Að sprengja börn er ekki sjálfsvörn“).
Saadeh er af palestínskum uppruna og segir hann við CBS News að atvikið hafa verið bæði niðurlægjandi og óskiljanlegt og kveðst hann hafa lagt fram formlega kvörtun vegna málsins.
Saadeh segir í viðtali við miðilinn að skilaboðunum á bolnum hafi verið ætlað að vekja athygli á stöðu barna á átakasvæðum og að þau hafi sérstaka þýðingu fyrir sig.
Saadeh segir að yfirmaður hjá flugfélaginu hefði komið að máli við sig skömmu eftir að hann fór um borð í vélina.
„Hann sagði að flugfreyjunni fyndist bolurinn minn móðgandi. Síðan sagði hann: „Þú hefur tvo kosti. Annaðhvort skiptirðu um bol eða þú ferð ekki með þessu flugi,““ sagði Saadeh.
Hann segist hafa verið bæði sár og niðurlægður en ákveðið að verða við kröfunni svo hann missti ekki af fluginu. Hann hafi þó ítrekað reynt að fá skýringar á því hvers vegna áletrunin væri talin móðgandi, án árangurs.
Að sögn Saadeh sagði starfsmaður flugfélagsins við hann eftir lendingu að hann ætti sjálfur að sjá að bolurinn væri móðgandi.
„Ég spurði: „Finnst þér að það eigi ekki að sprengja börn, eða finnst þér að það eigi að sprengja börn? Hvað nákvæmlega er það sem móðgar þig?““ sagði hann.
United Airlines staðfesti við CBS News New York að Saadeh hefði ferðast með fluginu eftir að hafa skipt um bol.
Flugfélagið benti jafnframt á að samkvæmt reglum þess sé því heimilt að neita farþegum um flutning ef þeir séu ekki klæddir á viðeigandi hátt eða ef klæðnaður þeirra teljist dónalegur, klámfenginn eða móðgandi.
Saadeh segir að hann hafi nú leitað til lögmanna og lagt fram formlega kvörtun til samgönguráðuneytis Bandaríkjanna vegna málsins.
Hann segist jafnframt ekki ætla að hætta að klæðast bolnum.
„Þegar öllu er á botninn hvolft eru skilaboðin einföld. Mér finnst rangt að sprengja börn, hvort sem þú ert Palestínumaður eða frá Mobile í Alabama,“ sagði hann.