Fréttir

Lifði af rússíbanaslys þar sem þrír létust - „Ég hugsa um þetta á hverjum degi“

Mynd
Rod lifði af en hefur verið verkjaður og þjáður síðan. Skjáskot/Youtube

Fjörutíu ár eru síðan kanadískur maður að nafni Rod Chayko lifði af hræðilegt rússíbanaslys. Vinur hans lifði það hins vegar ekki af og hann hefur barist við afleiðingarnar allar götur síðan.

Eins og segir í heimildarmyndinni Distasterthon á Youtube þá lifði maður að nafni Rod Chayko af hræðilegt rússíbanaslys í skemmtigarðinum Galaxyland í Albertuhéraði í vesturhluta Kanada 

Þann 14. júní árið 1986. Slysið átti sér stað í rússíbana sem kallaðist The Mindbender, og var reistur aðeins hálfu ári áður, í desember árið 1985. Á þeim tíma var þetta stærsti innandyra rússíbani heims í stærstu verslunarmiðstöð heims, West Edmonton Mall.

Ráin losnaði og fólkið skutlaðist til jarðar

Rod og vinur hans sátu í aftasta vagninum ásamt tveimur öðrum. Rod var sá eini sem lifði ferðina af.

Rússíbaninn var á 100 km/klst ferð þegar vagninn skall á súlu og þeytti fólkinu úr, beint niður á steinsteypt gólfið.

Hjól vagnsins höfðu losnað bæði frá brautinni og vagninum sjálfum. Áður en vagninn losnaði alveg byrjaði hann að sveiflast til og frá á brautinni, sem orsakaði það að hann skemmdist enn þá meira.

Mynd

Þá losnaði ráin sem liggur yfir kjöltu farþeganna og fólkið var laust í vagninum. Þegar höggið kom skutlaðist það úr vagninum.

Eins og áður segir létust þrír, þar á meðal vinur Rod, David Sager að nafni, í slysinu. Hin sem létust var ungt trúlofað par, Tony Mandrusiak og Cindy Sims. Allt var þetta fólk rétt skriðið yfir tvítugt.

Verkjaður í 40 ár

Rod komst lífs af en hlaut alvarlega áverka. Áverka sem breyttu lífi hans. Hann hefur fundið fyrir nær stanslausum verkjum allar götur síðan, í fjörutíu ár, og lengi notað kannabis að læknisráði.

„Ég man eftir að hafa fundið hann sveiflast og gripið í ránna. Það næsta sem ég man eftir var að ég var að lenda á jörðinni,“ segir Rod um þennan örlagaríka dag.

Hann segist hafa munað eftir því að hafa farið í verslunarmiðstöðina með David vini sínum, sem hafi verið mikið fyrir ævintýri. David vildi fara í rússíbanann en Rod datt ekki í hug að þetta gæti endað svona. Þetta hafi þó klárlega verið slys og ekkert annað.

Mynd

„David, Tony og Cindy eru dáin og það breytti lífi mínu til frambúðar,“ segir Rod. „Ég hugsa um þetta á hverjum degi.“

Tekinn úr umferð 2023

Rod, sem starfar sem logsugumaður, hefur ekki óttast það að fara aftur í verslunarmiðstöðina og aftur í Galaxyland. Hann hefur farið þangað með börnum sínum og barnabörnum. En í rússíbanann fór hann aldrei aftur. Hann lagðist þó ekki gegn því að aðrir færu í hann.

The Mindbender var ekki tekinn úr umferð eftir slysið hörmulega sumarið 1986. Hann var lagaður og tekinn aftur í notkun. Það var ekki fyrr en árið 2023 sem rússíbaninn var loks tekinn niður.

Rod fékk bætur frá skemmtigarðinum vegna slyssins, ekki samt þannig bætur að hann yrði ríkur maður. Einnig fær hann ávallt fría miða í öll tækin.