Mikill munur er á því hvar Íslendingar og hvar erlendir ferðamenn taka ljósmyndir á höfuðborgarsvæðinu. Eins og sést á korti er myndataka ferðamanna afmörkuð við tvö svæði.
Eins og sést á korti Ericu Fischer hjá Geotaggers World Atlas er mikill munur á hvar heimamenn og hvar erlendir ferðamenn taka ljósmyndir.
Á kortinu eru bláu punktarnir þar sem heimamenn taka ljósmyndir og rauðir þar sem ferðamenn taka myndir. Gulu punktarnir eru óvissir, það er að er ekki er hægt að segja með fullri vissu hvort um sé að ræða heimamann eða ferðamann. Punktarnir sýna þéttleika ljósmyndanna.
Út frá kortinu má sjá að erlendir ferðamenn taka langflestar myndir í Miðborg Reykjavíkur og Þingholtunum. Þéttleikinn er mestur í kringum Hallgrímskirkju. Einnig taka þeir margar myndir í Perlunni, væntanlega flestar af útsýnispöllunum. Ferðamenn virðast taka fáar myndir utan þessara svæða. Einna helst þó í miðbæ Hafnarfjarðar og í Viðey.
Eins og gefur að skilja eru bláu punktarnir mun dreifðari um allt höfuðborgarsvæðið. Athygli vekur þó að mikill þéttleiki blárra punkta er yst á Seltjarnarnesi, einkum í kringum Gróttuvita.