„Þessi fékk mig til að ōskra! Mér brá svo mikið þegar hún kom undan blautri tusku sem lá á gólfinu fyrir framan þvottavélina,“ segir íbúi á Höfn í Hornafirði í færslu á Facebook, íbúinn gaf DV góðfúslegt leyfi til að sýna mynd af dýrinu sem leiddi til öskursins.
Maður sem þekkir vel til skordýra var fljótur að benda á að um sé að ræða garðfætlu.
„Sækjast mikið í raka og smádýr eins og silfurskottur, maura, flugur og fleira. Gjarnar að veiða á nóttunni og fela sig þá á daginn, svo grunar að hún hafi verið að fela sig undir rakri tuskunni, hefur ekki hatað það,“ segir hann. „Geta bitið en eru ekki eitraðar, þó sársaukafullt þegar þær bíta. Ekki beint geðslegt dýr svo skil vel að hafa brugðið. Þessi er samt alveg í stærri kantinum.“
Veldur gjarnan óhug og hryllingi
Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar má finna garðfætlur hringinn í kringum landið en algengust á sunnanverðu landinu, eru þær langstærstar íslenskra margfætlna.
„Garðfætla er þekkt héðan frá fornu fari. Hún er með stærri smádýrum hér, yfirleitt illa þokkuð og veldur gjarnan óhug og hryllingi, þar sem hún skýst óvænt undan fólki við garðyrkjustörf og annað tilfallandi. Það er að sjálfsögðu, stærðin, snerpan og fótafjöld sem fólki líkar illa,“ segir á vefnum.
„Garðfætlan er argasta rándýr og fljót að láta til skarar skríða, þegar hún kemst í færi við girnilega bráð. Ef pöddugreyi er varpað ofan í krukku með garðfætlu þarf ekki að spyrja að leikslokum. Ef garðfætla er tekin upp snýst hún snarlega til varnar og má vel kenna það er hún bitur í húð. Það er annars skaðlaust.“
Margir hafa sagt dýrið vera fallegt og ástæðulaust sé að kippa sér mikið upp við það. Íbúanum var vel skemmt yfir atvikinu.
„Mér var bara mjōg brugðið þegar ég tók upp tuskuna af gólfinu og þessi kom hlaupandi á mōrgum fótum undan henni.“
Margir taka undir með íbúanum og segjast hefðu öskrað líka, Sólrún nokkur gengur skrefinu lengra og segir:
„Gott ráð að hella bensíni í öll niðurföll og kveikja í húsinu.“