Breski hægriöfgamaðurinn Nigel Farage, formaður Reform UK, hefur verið sakaður um að nýta sér dauða flokkssystur sinnar Ann Widdecombe. Farage sagði að um væri að ræða skipulagt morð en lögregla hefur beðið fólk um að geta sér ekki til um ástæður.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Farage hefur verið sakaður um að nýta sér dauða Widdecombe í pólitískum tilgangi. En Widdecombe, sem áður var ráðherra Íhaldsflokksins en gekk í Reform UK, fannst látin á heimili sínu í Haytor á fimmtudag.
Orð Farage vonbrigði
28 ára gamall breskur maður var handtekinn í Rotherham á laugardag, um 415 kílómetrum frá staðnum sem líkið fannst, og er grunaður um morð.
„Ég trúi ekki að þetta sé innbrot sem hafi farið úrskeiðis,“ sagði Farage en þau ummæli hafa farið öfugt ofan í aðstandendur og vini Widdecombe sem saka hann um að nýta sér dauða hennar í pólitískum tilgangi.
„Ann Widdecombe var of dýrmæt fjölskyldu hennar, vinum og fyrrum samstarfsmönnum til þess að morð hennar sé nýtt til að breiða út pólitískan áróður,“ sagði Harvey Proctor, fyrrverandi þingmaður Íhaldsflokksins. „Lögreglan hefur sérstaklega beðið fólk um að geta ekki í eyðurnar um ástæður morðsins. Þess vegna eru það gríðarleg vonbrigði að Nigel Farage hafi gert nákvæmlega það.“
Fjölskyldan miður sín
Þá hafa fjölskyldumeðlimir Widdecombe sagt við blaðið Mail on Sunday að þeir vilji ekki að dauði hennar sé nýttur í pólitískum tilgangi. Það hafi valdið þeim óhug þegar Farage mætti á vettvang morðsins og byrjaði að tjá sig.
„Við erum meðvituð um vangaveltur á netinu og opinberlega, sérstaklega varðandi ástæður málsins,“ sagði Matt Longman, aðstoðarlögreglustjóri. „Ég hvet fólk aftur til að deila ekki eða taka þátt í þessum vangaveltum – þær eru gagnslausar, þær styðja ekki rannsókn okkar og sérstaklega valda þær fjölskyldu og vinum Widdecombe frú miklum áhyggjum.“