Við Íslendingar eigum það til að kvarta yfir háu verðlagi, óútreiknanlegu veðri og ýmsu sem betur mætti fara hér á landi. En þegar erlendir ferðamenn líta til baka eftir Íslandsferð er sagan oft allt önnur.
Fyrir marga er landið ógleymanleg upplifun þar sem tærasta vatn sem þeir hafa smakkað, stórbrotin náttúra og einstakur matur sitja eftir í minningunni löngu eftir að heim er komið.
Á dögunum birtist áhugavert innlegg í Facebook-hópnum Reykjavik, ICELAND Travel & Vacation þar sem ferðalangar voru beðnir um að lýsa því sem þeir sakna strax eftir komuna frá Íslandi. Er óhætt að segja að svörin sýni að það eru ekki bara fossarnir og norðurljósin sem hafa stolið hjörtum þeirra.
Hér að neðan birtist brot af þeim yfir 700 athugasemdum sem skrifaðar hafa verið við færsluna.
„Drykkjarvatnið. Besta vatn í heimi.“
„Hið afslappaða daglega líf.“
„Íslenska veðrið og stórfenglegt landslagið.”
„Fólkið og landslagið.“
„Ferska loftið.“
„Að blanda romm og kók með ísmolum sem brotnir voru úr ísjaka.“
„Pylsurnar.“
„Að þurfa ekki að horfa upp á Dollar General á hverju götuhorni. Það er erfitt að fara úr friðsældinni og kyrrðinni á Íslandi aftur í ysinn og umferðaröngþveitið í Atlanta – og fara úr notalegum íslenskum sumarhita í 37 stiga steik.“
„Hin stórbrotna náttúrufegurð og það að geta drukkið vatnið beint úr krananum í stað þess að þurfa að kaupa vatn á flöskum.“
„Fossarnir.“
„Tæra og ferska loftið. Ég bý í Flórída.“
„Veðrið. Ég bý í Suður-Flórída.“
„Besti matur í heimi.“
„Barnabörnin mín gleymdu nýju vatnsbrúsunum sínum á borði fyrir utan veitingastað. Borðið var hinum megin við götuna frá veitingastaðnum. Nokkrum klukkustundum síðar hringdi ég til að athuga hvort þeir hefðu fyrir tilviljun fundið brúsana. Starfsfólkið hafði fundið þá og geymt fyrir okkur þar til við komum að sækja þá.
Íslendingar eru heiðarlegt, umhyggjusamt og vingjarnlegt fólk. Við vorum ótrúlega þakklát. Barnabörnin ætla meira að segja að skrifa þakkarkort og færa starfsfólkinu það í eigin persónu.
Það sem ég mun sakna mest er heiðarleikinn og velvildin. Mjög yndislegt fólk!”
„Frábæri maturinn, stórkostlega náttúran og hlýlegt viðmót Íslendinga! Það er einfaldlega ekki hægt að nefna bara eitt.“
„Allt. Heimferðin frá Montreal til Ottawa var hálf dapurleg eftir Íslandsferðina. Engir fossar og engar grænar, bylgjóttar hlíðar blöstu lengur við.“
„Allt! Vatnið, náttúran, fólkið, dýralífið, ísinn, dalirnir, svörtu sandarnir, ísjakarnir, pylsurnar, baðlónin, jöklarnir, fossarnir, fjöllin, tæra loftið og hafið. Ég gæti haldið áfram endalaust.“