Héraðsdómur hefur kveðið upp dóm í máli tveggja manna sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði fyrir peningafals. Um er að ræða eldri mann og barnabarn hans, ungan mann, en nákvæmur aldur þeirra er ekki gefinn upp í dómnum. Mennirnir voru sakaðir um að reyna að skipta fjórum ógildum 100 dollaraseðlum yfir í annan gjaldmiðil í banka, eða leggja inn á reikning, í banka í Kópavogi sumarið 2025.
Starfsmenn bankans urðu fljótt varir við að seðlarnir væru ekki ekta. Þeir fóru ekki í gegnum talningavél og við nánari skoðun kom í ljós að þá skorti öryggisþræði, vatnsmerki og önnur öryggisatriði sem einkenna raunverulega bandaríkjadalaseðla.
Greining lögreglu leiddi í ljós að um svokallaða „Joss Paper“-seðla væri að ræða, sem framleiddir eru til notkunar við trúarlegar athafnir í Kína og öðrum Asíulöndum. Á seðlunum stóð meðal annars „USE FOR JOSS PAPER ONLY“ á framhlið og „ABODE OF THE DEAD BANK“ á bakhlið í stað hefðbundinna áletrana bandarískra seðla.
Vissu ekki að seðlarnir væru falsaðir
Ákærðu neituðu sök frá upphafi. Yngri maðurinn sagðist hafa fundið seðlana í veski sem hann fann á bekk daginn áður. Þar sem hann var ekki með bankareikning á Íslandi hafi hann beðið afa sinn um að leggja þá inn á eigin reikning. Eldri maðurinn kvaðst fyrst hafa séð seðlana þegar barnabarnið rétti honum þá við afgreiðsluborð bankans og sagðist ekki hafa haft neina ástæðu til að ætla að þeir væru falsaðir.
Dómurinn taldi að ekki hefði tekist að sanna ásetning um að koma fölsuðum seðlum í umferð. Þá þótti heldur ekki sannað að ákærðu hefðu haft ástæðu til að gruna að seðlarnir væru falsaðir. Þar var meðal annars litið til þess að yngri maðurinn fór með seðlana beint í banka, þar sem hann mátti vita að þeir yrðu skoðaðir, fremur en að reyna að nota þá í almennum viðskiptum. Einnig þótti framkoma þeirra í bankanum ekki bera merki um að þeir væru að reyna að leyna neinu og starfsmenn bankans báru vitni um að þeim hefði virst niðurstaðan koma á óvart.
Mennirnir voru því sýknaðir en seðlarnir fjórir gerðir upptækir.
Dóminn má lesa hér.