Fréttir

Skrautlegar nágrannaerjur á Selfossi - Tekist á um karókísöng og meintan atvinnurekstur í bílskúr

Mynd

Skrautlegar nágrannaerjur á Selfossi hafa nú ratað fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, en þar takast eigendur tvíbýlis á um meint bifvélaverkstæði og ónæði sökum karókísöngs.

Málið varðar tvílyft hús sem skiptist í tvo eignarhluta. Kærandi í málinu er eigandi neðri hæðar en sá hafði fyrst samband við byggingarfulltrúa Árborgar á árinu 2020 og kvartaði þá undan umgengni eigenda efri hæðar og gerði athugasemdir við viðbyggingu við húsið, númeralaus ökutæki á lóð og grun um óheimila atvinnustarfsemi í húsnæðinu, þ.e. meintan rekstur sólbaðsstofu. Byggingarfulltrúi komst að þeirri niðurstöðu að byggingarleyfisskyldar framkvæmdir hefðu farið fram á lóðinni án leyfis og var eigendum efri hæðar eins gert að láta af rekstri meintrar sólbaðsstofu.

Bílar á lóðinni voru þó ekki fjarlægðir og hélt eigandi neðri hæðar áfram að gera athugasemdir við umgengni nágranna sinna og hélt því meðal annars fram að annar nágranninn væri að reka ólöglegt bifvélaverkstæði í bílskúrnum með tilheyrandi hávaða og ónæði. Taldi eigandinn að Árborg hefði ekki brugðist nægilega við athugasemdum hans og ávirðingum og leitaði því til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Árbók tók til varna og vísaði til þess að kærandi hefði fyrst leitað til sveitarfélagsins á árinu 2020 og þá hafi verið gripið til aðgerða. Eigendum efri hæðar var gert að fjarlægja óheimila viðbyggingu og láta af rekstri sólbaðsstofu í húsinu. Hins vegar hafi ekki tekist að sýna fram á að í bílskúrnum væri rekið verkstæði.

Eigendur efri hæðar létu málið eins til sín taka og þvertóku fyrir að bifvélaverkstæði væri rekið úr bílskúrnum. Annar þeirra væri menntaður bifvélavirki sem hefði tekið að sér að gera við ökutæki fjölskyldumeðlima án þess að taka fyrir það gjald. Þar sé um áhugamál að ræða en ekki atvinnustarfsemi. Gerðu eigendur efri hæðar eins athugasemdir við ítrekað áreiti af völdum eiganda neðri hæðar sem var sagður stunda hávært karíókí nokkrum sinnum í viku sem heyrist greinilega á milli hæða. Eigendur efri hæðar sögðust sjálfir vera úrvinda af þreytu vegna áreitis frá nágrannanum á neðri hæðinni og íhuga að leita réttar síns hjá umboðsmanni Alþingis.

Kærunefndin taldi að erindi eiganda neðri hæðar hefði ekki fengið úrslausn hjá þar til bæru stjórnvaldi. Byggingarfulltrúi Árborgar þurfi að taka málið til skoðunar, þá einkum hvort atvinnustarfsemi sé rekin úr bílskúrnum og hvort drasl og annað á lóðinni sé að skapa hættulegar aðstæður.

Úrskurðurinn féll þann 10. júlí og má finna hér