Sævar Helgi Bragason, oft kallaður Stjörnu-Sævar, hefur svarað harðri gagnrýni sem þjóðfélagsrýnirinn og leikhúsgagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson setti fram á Facebook-síðu sinni fyrir helgi.
Jón Viðar gerði þá frétt mbl.is frá 3. júlí að umtalsefni en þar var greint frá samstarfi Sævars og brugghússins Malbyggs í tengslum við sólmyrkabjór sem kynntur var á dögunum.
Í samtali við mbl.is sagði Magnús Már Kristinsson hjá Malbygg að Sævar hefði haft samband fyrir um tveimur árum með þessa hugmynd. Forsvarsmenn Malbyggs hafi tekið vel í hana enda einstakur viðburður sem gerist ekki aftur hér á landi fyrr en árið 2156.
Jón Viðar var ekki hrifinn af þessu útspili Sævars og lét hann þá óánægju í ljós á Facebook-síðu sinni hvar hann deildi umræddri frétt mbl.is um málið.
„Sorglegt að hann "Stjörnu-Sævar" skuli láta hafa sig út í að auglýsa áfengi í tengslum við þennan blessaða sólmyrkvadag. Varpar í mínum huga og ég veit fjölda annarra, ekki síst ábyrgra foreldra, stórum skugga á tilstandið sem annars hefði bara verið skemmtilegt. "Dropinn holar steininn". - En svona er kapítalisminn þegar hann verður siðlaus. Sem hann er reyndar ærið oft í þessu annars svo ágæta samfélagi okkar.”
Sævar Helgi svaraði loks færslu Jóns Viðars í gærkvöldi og sagði að í hans augum væri málið einfalt.
„Mér finnst handverksbjór góður og Malbygg er mitt eftirlætisbrugghús. Fæ ekki eina einustu krónu út á þetta. Það eina sem ég fæ er að njóta þess að sötra góðan bjór að kvöldi 12. ágúst og fagna með vinum og vandamönnum allri vinnunni sem ég hef lagt á mig undanfarin tvö ár. Um það eitt snerist það þegar ég spurði hvort þeir væru til í að brugga sérstakan bjór af þessu tilefni. Leitt að það fari fyrir brjóstið á fólki. Hvet nefnilega alla til að fagna að myrkva loknum, hvernig sem fólk vill, með eða án öls,“ sagði Sævar í svari sínu.
Jón Viðar þakkaði Sævari fyrir svarið og sagði hann ætti miklar þakkir skildar fyrir allt hans góða starf við að efla áhuga og þekkingu fólks á himingeimnum. Það breytti þó ekki þeirri staðreynd að áfengi er einn mesti bölvaldur íslensku þjóðarinnar.
„Bjórinn er alls ekki undanskilinn; ef nokkuð er getur hann verið enn lúmskari en aðrar tegundir áfengis. Þetta hef ég margsinnis séð sjálfur. Allir geta skemmt sér án áfengis, ef þeir bara vilja. Áfengi á aldrei að verða sjálfsagður hluti af lífsmáta fólks. Allt sem ýtir undir slíkt er af hinu illa. Við verðum öll að leggja okkar litlu lóð á vogarskálarnar til að koma í veg fyrir það. Allt telur.“