Fréttir

Rifrildi um menntun og leigubifreið endaði með ósköpum - Nefbraut konuna sem kallaði hann „ómerkilegan barþjón“

Mynd
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: DV

Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að nefbrjóta konu sumarið 2023, en konan hafði áður veist að manninum fyrir að neita að deila með henni leigubifreið úr samkvæmi í Kópavogi. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. júlí sl.

Aðdragandi málsins var sá að manninum og konunni hafði verið boðið í grillveislu en þau þekktust ekki fyrir. Þar virðist hafa komið til deilna á milli þeirra þar sem konan gerði meðal annars lítið úr störfum og menntun, eða menntunarleysi, mannsins og kallaði hann „ómerkilegan barþjón“. Vinkona mannsins lýsti þessu sem „menntasnobbi“ og sagði að brotaþolinn hefði gert lítið úr því að maðurinn væri ekki með háskólagráðu. Síðar um kvöldið kom til tals að maðurinn, vinkona hans og brotaþoli myndu deila leigubifreið úr gleðskapnum. Maðurinn gat þó ekki hugsað sér að deila bifreið með konu sem hefði komið svona dónalega fram við hann og lagði hann til að hann og vinkonan færu bara tvö í leigubifreiðina. Brotaþoli brást ókvæða við og vék sér að manninum með höggum og leiðindum. Vinkonan reyndi að ganga á milli. Maðurinn taldi að brotaþolinn hefði slegið til hans um 10-11 sinnum áður en hann missti stjórn á sér og svaraði með tveimur hnefahöggum í andlit hennar. Við höggin nefbrotnaði konan og féll til jarðar.

Vitni sem áttu leið fram hjá vettvangi brotsins höfðu samband við lögreglu og eitt þeirra náði myndbandi sem sýndi meðal annars þegar konan vék sér að manninum.

Vildi brotaþoli meina að maðurinn hefði einnig sparkað í höfuð hennar eftir að hafa kýlt hana í jörðina, en frásagnir vitna voru ekki á einn veg um þennan þátt málsins og taldist það því ósannað gegn neitun mannsins sem kannaðist ekki við sparkið. Hann viðurkenndi þó að hafa slegið hana tveimur hnefahöggum en taldi það hafa verið í sjálfsvörn.

Dómurinn tók undir að konan hefði átt upptökin að átökunum en þó hefðu viðbrögð mannsins verið langt umfram það sem gæti talist réttlætanleg sjálfsvörn, enda hann bæði stærri og sterkari en konan. Maðurinn var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi meðal annars með vísan til þess að hann hefði ekki átt upptökin, sýnt mikla iðrun og eins sökum þess að óhóflegar tafir urðu á meðferð málsins hjá lögreglu og ákæruvaldi. Konan sagðist glíma við áfallastreitu eftir atvikið sem meðal annars hefði haft áhrif á námsgetu hennar. Manninum var því gert að greiða konunni rúmlega 660 þúsund krónur í skaða- og miskabætur.