Fréttir

Nágrannar lýsa manninum sem grunaður er um morðið á Ann Widdecombe

Mynd
Ann Widdecombe. Mynd/Getty

Breska lögreglan telur að 28 ára gamall karlmaður hafi ekið um 440 kílómetra frá Suður-Yorkshire að heimili fyrrverandi bresku þingkonunnar Ann Widdecombe í Devon, vopnaður um 30 sentímetra langri tré- eða járnstöng, áður en hún var myrt á miðvikudag.

Maðurinn var handtekinn á laugardagskvöld eftir að um tugur vopnaðra lögreglumanna umkringdi heimili hans í Rotherham. Hann er grunaður um morðið á Widdecombe, sem var 78 ára gömul fjölmiðlakona og fyrrverandi ráðherra og þingkona.

Samkvæmt upplýsingum Daily Mail telja rannsakendur að öryggismyndavélar hafi náð manninum yfirgefa heimili sitt á milli klukkan 6:30 og 7 að morgni miðvikudags. Á upptökunum virðist hann bera um 30 sentímetra langa stöng undir bol sínum áður en hann leggur hana inn í rauðan Vauxhall Corsa-bíl. Þaðan er talið að hann hafi ekið í um fimm klukkustundir að afskekktu heimili Widdecombe í Haytor á Dartmoor.

Lögreglan telur að Widdecombe hafi verið myrt skömmu eftir hádegi sama dag. Lík hennar fannst morguninn eftir.

Nágrannar lýsa hinum grunaða sem atvinnulausum einfara sem hafi orðið sífellt hlédrægari eftir að faðir hans lést í desember á síðasta ári.

Einn nágranni sagði að áður hefði verið auðvelt að ræða við manninn en eftir andlátið hefði hann nánast hætt öllum samskiptum.

„Hann hélt sig út af fyrir sig og talaði varla við nokkurn mann,“ sagði nágranninn við Daily Mail.

Handtakan fór fram á laugardagskvöld. Samkvæmt vitnum umkringdu um tólf vopnaðir lögreglumenn húsið áður en þeir knúðu dyra. Maðurinn opnaði sjálfur, staðfesti nafn sitt og var handtekinn án þess að veita mótspyrnu.

Þrátt fyrir að Widdecombe hafi verið þekktur stjórnmálamaður segir lögreglan ekkert benda til þess að morðið hafi verið pólitískt eða tengst hryðjuverkum.