Fréttir

„Jáið, fyrir neiarana, ætti að vera nobrainer til þess að útkljá þetta“

Mynd
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Skjáskot/YouTube

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst um áframhald aðildarviðræðan ætti að vera keppikefli andstæðinga aðildar, umræðan um aðild myndi aldrei þagna fyrr en það væri kominn samningur á borðið. 

Þorgerður Katrín var í viðtali hjá Sölva Tryggvasyni þar sem hún var meðal annars spurð hvort hennar pólitíski ferill væri ekki úti af þjóðin myndi hafna aðild að Evrópusambandinu:

„Evrópusambandið er ekki markmiðið. Markmiðið er að efla samkeppnishæfni landsins, efla efnahagslegt öryggi og pólitískt öryggi á þessum tímum með því að treysta raðirnar með þeim þjóðum sem eru með okkur í grundvallar-prinsipp málum. Lýðræði, frelsi, þora að tala um mannréttindi, friðhelgi landamæra og allt þetta. Evrópusambandið er ekki markmiðið. Ef að við förum ekki þessa leið þá eru aðrar leiðir sem við þurfum þá að fara. Á móti segi ég; við erum búin að prófa fjandi margar leiðir og þær eru ekki alveg að ganga upp þegar kemur að krónunni og þeim kerfislæga óréttlæti sem að fylgir krónunni,“ segir hún.

„Það er alltaf þetta óréttlæti. Það er alltaf þannig að við erum að minnsta kosti tvisvar eða þrisvar sinnum hærri stýrivexti hér en annars staðar. Það eru bara Rússar og Úkraínumenn sem eru með hærri vexti en við í dag.“

Íslendingar snillingar í bjúrókrasíu

Ræddi hún einnig um svokallaða gullhúðun EES-reglna, en það er þegar bætt er á fleiri reglum þegar verið að innleiða tilskipanir Evrópusambandsins. 

„Bjúrókrasían hefur verið mikil, reyndar erum við Íslendingar snillingar í að gera enn meira en það er boðað þarna úti,“ segir hún. „Merkilegt er að sumt þetta er vegna kröfu frá atvinnulífinu eða einhverjum hagsmunasamtökum hérna heima, það er verið að bæta á eitthvað, sumt kemur innan úr kerfinu. Þetta er eitthvað sem við eigum að taka á. Ég kalla þetta blýhúðun frekar en gullhúðun.“

Segir hún að Evrópusambandið sé búið að vera í sjálfsvinnu hvað þetta varðar. „Það þarf að einfalda hlutina, það er verið að gera það. Núna þegar Evrópusambandið er í þessu afreglunarferli, þá væri gott að vera með sæti við borðið og taka þátt í því að mynda og móta þetta ferli.“

Málið úr sögunni í langan tíma ef samningur yrði felldur

Þorgerður Katrín segir að það sé borðleggjandi að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. 

„Neihliðin vill ekki að umræðan snúist um að þetta er bara já til að sjá. Stundum finnst mér eins og neihliðin óttist að við náum góðum samningum. Ég held að við ættum í það minnsta að sameinast um það að reyna að ná eins góðum samningum og hægt er fyrir íslenska hagsmuni,“ segir hún. 

„Þessi ríkisstjórn, ef það verður nei hún mun þá ekki leggja aftur af stað í einhvern Evrópuleiðangur. Það er ekki þannig en umræðan heldur áfram því að það er ekki búið að klára málið. Viðreisn mun ekki gera það en umræðan mun halda áfram þarna úti.“

Málið verði áfram til umræðu þó að verði ekki út þetta kjörtímabil. 

„Ef það verður já, samningur og síðan nei, þá er málið úr sögunni í nokkuð langan tíma,“ segir hún.

„Jáið, fyrir neiarana, ætti að vera nobrainer til þess að útkljá þetta“ 

Hér má horfa á viðtalið í heild: