Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, Heiða Ósk, stofnandi Facebook-hópsins „Áfram stelpur“, greinir frá því á Facebook-síðu sinni, að lögregla hafi fellt niður rannsókn á ærumeiðingarmáli gegn henni. Fyrrverandi unnusti hennar kærði hana til lögreglu fyrir ærumeiðingar vegna skrifa hennar um meint ofbeldi hans. Hún birtir jafnframt mynd af bréfi frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem henni er tilkynnt um að rannsókn málsins hafi verið hætt þar sem ekki sé talinnn grundvöllur til að halda henni áfram.
Heiða Ósk segist hafa verið kærð fyrir áreiti á sama tíma og hún þurfi að þola áreiti frá kærandanum. Hún segist hafa greint frá ofbeldi sem hennar fyrrverandi hafi beitt hana og börnin þeirra. Skrifin birti hún í september árið 2025. Í október sama ár kærði maðurinn hana til lögreglu fyrir ærumeiðingar. Var hún boðuð til skýrslutöku vegna málsins snemma í maí á þessu ári og seint í sama mánuði var málið fellt niður.
Heiða Ósk skrifar:
„Hann kærði mig fyrir áreiti á meðan hann var enn að áreita mig…
Áreitið hélt áfram og áreitið heldur áfram - þrátt fyrir afskipti lögreglu.
• Like hér.
• Follow-beiðnir.
• Keyra í veg fyrir mig.
• Skilaboð.
• Símtöl.
Ég upplifði kæruna sem nýjustu leiðina hans til að halda ofbeldinu áfram. Því ofbeldi endar ekki alltaf þegar sambandi lýkur – stundum skiptir það bara um birtingarmynd.
Fyrir suma þolendur heldur það áfram með áreiti, eftirliti, hótunum eða því að vera dregnir inn í kæru- og réttarkerfisferli eftir að þeir stíga fram.“
Sambandsslit ekki endapunktur ofbeldis
Hún segir að áreiti mannsins muni ekki þagga niður í henni:
„Ég hef ekki hugmynd um hvort hann muni einhvern tímann hætta en ég veit að ég mun aldrei hætta að nota röddina sem tók mig langa tíma að finna aftur
Fyrir mig
Fyrir börnin mín.
Fyrir aðra þolendur.“
Hún segir ennfremur:
„Ef þú tengir við þessa færslu og vantar einhvern til að spjalla við eða styðja þig - þá er ég ein skilaboð í burtu“