Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært ökumann fyrir hegningar- og umferðarlagabrot vegna umferðarslyss á Suðurlandsvegi þar sem tvær manneskjur létu lífið.
Í þeirri útgáfu ákæru sem DV fékk senda frá Héraðsdómi Austurlands hafa ýmsar upplýsingar verið afmáðar. Þannig segir ekki frá því hvenær slysið átti sér stað né hvar, fyrir utan að það hafi verið á Suðurlandsvegi. Má geta sér til um að það hafi verið í nálægð við Hornafjörð, þar sem Suðurlandsvegur tengist austurhluta hringvegarins, en um það er ekkert hægt að slá föstu, þar sem sú ákvörðun að ákæra og rétta í málinu á Austurlandi gæti helgast af búsetu ákærða, sem einnig er engu hægt að slá föstu um.
Ákærði er sagður hafa ekið of hratt og án nægilegrar aðgæslu og varúðar, þar sem vegurinn var háll og ástand bílsins ábótavant, þar sem slag var í hjólalegu hægra megin að aftan. Segir í ákæru að ökumaður hafi ekki haft fulla stjórn á bílnum, þannig að hann gæti stöðvað á þeim hluta vegarins sem framundan var. Afleiðingarnar voru þær að hann missti stjórn á bílnum, sem fór yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði á bíl sem ekið var úr gagnstæðri átt.
Ökumaður bílsins sem varð fyrir bíl ákærða hlaut brot á lendalið og tveir farþegar í bílnum, karl og kona, hlutu slíka fjöláverka að þau létust bæði.
Krafinn um 12 milljónir í miskabætur
Fyrir hönd bílstjórans sem bíll ákærða lenti á er gerð bótakrafa á ákærða að fjárhæð átta milljónir króna. Kröfuna gerir Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður og hann gerir jafnframt kröfu fyrir hönd dánarbús manneskju sem lést í slysinu um að ákærði greiði dánarbúinu bætur að fjárhæð fjórar milljónir króna.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Austurlands þann 9. júlí síðastliðinn.