Fréttir

Gæslufólk á útihátíðum þurfi að vera með sjálfstraustið til að stíga inn og vera óþægileg

Mynd
Drífa Snædal, talskona Stígamóta. Mynd: Ernir.

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot tengd hátíðarhöldum á Kótelettunni á Selfossi aðfaranótt sunnudags, þá var tilkynnt um eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal aðfaranótt laugardags. Drífa Snædal talskona Stígamóta segir í viðtali við Fram undan á Rás 2 að forvarnir séu besta leiðin til að fyrirbyggja kynferðisofbeldi.

Hún segir að nokkrir hátíðarhaldarar hafi leitað til Stígamóta til að fá fræðslu og til að koma upp verklagsreglum, það sé mjög ánægjulegt og það hafi tekist vel á mörgum hátíðum að vera með sýnileg skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið. 

„Besta er að vera alltaf með góðar forvarnir, þá skiptir máli að vera alltaf sýnilegt gestum og starfsfólki, hér ætla allir að skemmta sér fallega og það verði viðbrögð við því ef að einhver verður var við óeðlileg samskipti,“ segir Drífa, mikilvægt sé að gestir passi líka upp á hvort annað. 

Líka að gæslufólk sé meðvitað um vísbendingar um óeðlileg samskipti og hafi skýrar verklagsreglur til að grípa inn í það. Við teljum að það hafi töluverð áhrif að vera bara sýnileg, vera með sýnileg skilaboð og síðan þurfa þeir sem sjá um gæslu að hafa tækin og tólin og þekkinguna og sjálfstraustið til að stíga inn í málin og vera óþægileg þegar svo ber undir, að setja öryggi gesta á öndvegi.“