Fréttir

Finnbogi dæmdur fyrir nauðgun - Kyrkingartak kom við sögu

Mynd
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Sigtryggur Ari

Karlmaður á fertugsaldri, Finnbogi Þór Gunnarsson, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun en hann byrjaði að beita konu ofbeldi eftir að kynlíf þeirra hafði hafist með samþykki beggja. Tók hann konuna meðal annars kyrkingartaki án þess að afla sér samþykkis fyrir því. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn.

Nauðgunin átti sér stað í maí árið 2022. Finnbogi og konan höfðu kynnst á Smitten fyrir nokkrum mánuðum og einu sinni stundað kynlíf saman. Þessa tilteknu nótt ákváðu þau að hittast í bænum og fóru saman heim til konunnar. Bæði voru sammála um að kynlífið hafi byrjað með samþykki beggja en að sögn konunnar byrjaði Finnbogi svo að beita hana ofbeldi og lét ekki af því þó hún reyndi að stöðva hann. Hann tók meðal annars föstu taki um háls hennar og þrengdi að í um það bil 40 sekúndur. Hún gat ekki talað, átti erfitt með að anda og óttaðist um líf sitt. Þar sem hún kom ekki upp orði sló hún ítrekað í hönd og handlegg Finnboga til að reyna að fá hann til að sleppa. Konan lýsti því einnig að maðurinn hefði hrækt í andlit hennar, slegið hana, hárreitt hana og lamið á innanvert lærið.

Finnbogi viðurkenndi að hafa þrengt að hálsi konunnar en taldi það hafa verið með fullu samþykki. Takið hefði verið laust og aðeins varað í nokkrar sekúndur, en Finnbogi sagðist vita að sumar konur kunni að meta svona tak og reynslan hafi kennt honum að það sé ekki gott að halda of lengi í senn.

Dómari tók fram að óumdeilt væri að samþykki lá fyrir þegar kynlífið hófst. Konan hafi þó fallið frá samþykki sínu þegar Finnbogi hóf að beita hana ofbeldi. Dómari tók fram:

„Þar sem verndarandlag nauðgunarákvæðisins er sjálfsákvörðunarréttur og athafnafrelsi fólks í kynlífi verður ekki litið svo á að samþykki brotaþola til samræðis hafi náð til hvers konar kynferðisathafna af hálfu ákærða. Í þeim athöfnum sem teljast sannaðar samkvæmt framansögðu fólst gróft ofbeldi og ólögmæt nauðung af hálfu ákærða.“

Ekki er hægt að nauðga af gáleysi samkvæmt íslenskum hegningarlögum en dómari tók fram að ákærða hefði ekki getað verið annað ljóst en að hann hefði þvingað konuna til áframhaldandi kynmaka. Hún hefði ítrekað reynt að slá til hans til að fá hann til að hætta og tók ekki lengur þátt í háttseminni eftir það. Þrátt fyrir það hefði ákærði haldið áfram. Honum hlyti eins að vera ljóst að samþykki konunnar náði ekki til þeirrar ofbeldisfullu háttsemi sem hann beitti hana. Engin gögn bendi til þess að hann hafi mátt ætla að samþykki lægi fyrir en hann og konan höfðu ekki rætt fyrir fram um mörk eða óskir í kynlífi.

Dómari tók þó fram að rúmlega fjögur ár væru liðin frá brotinu og að Finnboga yrði ekki kennt um þann drátt sem hefur orðið á meðferð málsins. Var refsing talin hæfileg fangelsi í tvö ár en auk þess þarf Finnbogi að greiða brotaþola 2 milljónir í miskabætur.

_______

Nýlega hófst átak gegn kyrkingartaki sem kallast: Ert þú með lífið í lúkunum, en markmiðið er að vekja athygli á lífshættu og alvarlegum afleiðingum kyrkinga, sérstaklega í tengslum við kynlíf. 

Sjá einnig: Hafa vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum í kynlífi – „Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil“