Fréttir

Fær vægan dóm fyrir hrottalegt ofbeldi gegn sambýliskonu sinni

Mynd
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: DV

Maður í Reykjavík hefur verið sakfelldur fyrir brot í nánum sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Honum var gefið að sök að hafa aðfaranótt 4. ágúst 2022 hana alvarlegu og endurteknu líkamlegu ofbeldi á heimili þeirra. Samkvæmt ákæru fólst ofbeldið meðal annars í ítrekuðum hnefahöggum, kverkataki, olnbogahöggum og spörkum sem hún hlaut af marga áverka. 

Brotaþoli lýsti því að hún hefði um langt skeið búið við bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi af hálfu ákærða. Frásögn hennar var studd læknisvottorðum, ljósmyndum af áverkum og vitnisburði læknis og lögreglumanna sem komu að málinu. Læknir taldi áverkana samræmast frásögn hennar og hafnaði þeirri skýringu ákærða að þeir hefðu orðið við íþróttaiðkun. Einnig lá fyrir eldra læknisvottorð sem benti til fyrra ofbeldis á heimilinu.

Ákærði neitaði sök og hélt því fram að hann hefði aðeins ýtt brotaþola frá sér í sjálfsvörn. Fyrir dómi kaus hann hins vegar að tjá sig ekki. Dómurinn taldi framburð brotaþola trúverðugan og samkvæman frá upphafi rannsóknar til aðalmeðferðar. Frásögn hennar naut jafnframt stuðnings annarra gagna málsins, en skýringar ákærða voru taldar ótrúverðugar og ósamrýmanlegar sönnunargögnum.

Héraðsdómur taldi hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hefði ítrekað beitt brotaþola ofbeldi og skapað viðvarandi ógnarástand sem félli undir ákvæði um ofbeldi í nánu sambandi. Við ákvörðun refsingar var litið til alvarleika brotsins, þess að það var framið á heimili fjölskyldunnar og gegn sambýliskonu ákærða, en einnig til þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað og að málið hafði dregist óhæfilega lengi.

Ákærði var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára og gert að greiða brotaþola 800.000 krónur í miskabætur auk vaxta. Jafnframt var honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur.