Fréttir

Brynjar Karl segir egó embættismanna standa í vegi Aþenu: „Það ríður ekki við einteyming vitleysan í þessu borgarapparati“

Mynd
Brynjar Karl Sigurðsson

„Því miður krakkar. Ég er bara alltaf að átta mig betur og betur á því að við búum í forréttindasamfélagi þar sem egó embættismanna skiptir meira máli en einhverjir krakkar sem eru langt undir tækifærum barna sem búa tíu mínútum frá þessu íþróttahúsi.“

Þetta sagði Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfubolta, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Í gær tilkynnti hann að liðið verði dregið úr Bónusdeildinni og skaut föstum skotum á meirihlutann í borginni þar sem ástæðan fyrir því að liðið dragi úr keppni sé að borgin hafi ekki tekist á við þær áskoranir sem fylgja 111 Reykjavík.

Sjá frétt: Aþena dregur lið sitt úr deildinni

„Því hefur verið mætt með grófri valdníðslu sem hefur ekki farið fram hjá vinum mínum á Facebook. Við höfum náð að berja það af okkur, en eftir lifir spilling í reykfylltum bakherbergjum. Nú ríkir veruleg skekkja í samstarfinu við Reykjavíkurborg. Við höfum ítrekað óskað eftir endurnýjun rekstrarsamningsins, sem var tekinn af okkur sem hluti af valdníðslunni, og aðstöðu í formi fundar- og kennslurýmis,“ sagði hann.

Vill opinberari umræðu 

Í viðtalinu í morgun sagði hann að ekkert hefði verið gert í efra Breiðholti frá því að útlendingar urðu meirihluti í hverfinu. Var hann spurður hvort það væru í raun og veru embættismenn sem vildu hreinlega ekki að fólkinu sem býr þar líði vel:

„Hundrað prósent,“ sagði Brynjar Karl. „Á eftir fer ég kannski á fund þar sem ég er að hitta embættismennina hjá borginni og þetta þarf að vera miklu opinberari umræða á milli mín og embættismannanna. Þá myndu allir sjá þetta. Nú kemur nýr meirihluti inn og hann er loginn fullur af allskonar ástæðum fyrir því, þetta er svo mikil hringekja.“

Hann segir að enginn nenni að vinna á skrifstofum borgarinnar. „Það nennir enginn að vinna þarna niðri í Borgartúni þannig að allir góðir menn sem að fatta hvað þetta er ömurlegt ástand eru fljótir að finna sér eitthvað annað og þá kemur einhver nýr inn í þetta. Við erum að fara í gegnum sömu hringekjuna ár eftir ár eftir ár. Svo eru einhverjir aðilar sem að stýra þessu á bakvið tjöldin sem eru ósnertanlegir, sem þú kemst aldrei að…“

Vetur eftir sumar

Var hann þá spurður hverjir það væru og nefndi hann tvo sviðsstjóra hjá Reykjavíkurborg, hjá öðrum hafi allt gengið og svo var skipt um aftur. „Það er bara eins og það hefði komið vetur strax eftir sumar. Fengum ekki einu sinni haust.“

Brynjar fer yfir það hvernig embættismannakerfi þæfa mál. „Þú bara kemst ekki að fólki og allt í einu eru komnar allskonar lygar og dót sem að ganga út á að eitthvað sé ekki hægt. Brunaúttekt og hitt og þetta.“

Áður en að hann hóf störf hafi borgin sjálf verið að reyna að bæta ástandið í hverfinu. „Eitt af verkefnunum sem var í gangi var einhver rannsókn „Hlustum á hverfið“, þá var borgin að gera þetta þannig að það koma ábyrgðinni yfir á fólkið í hverfinu með því að segja þetta eru útlendingar sem hafa ekki áhuga á íþróttagreinunum sem eru í boði. Vitiði hver er ein af íþróttagreinunum sem þeir ætluðu að setja allan peninginn á? Kung fu. Þetta er dokumentað. Það ríður ekki við einteyming vitleysan í þessu borgarapparati. Svo þegar þú mætir þarna og ferð að gera grín að þessu og segir hvað eru þið að pæla? Þá verða menn rosa litlir í sér, eru ekki vanir því að fólki fylgir eftir eins og við erum að gera. Þetta er miklu meiri áfellisdómur yfir hvað það eru margir bystanderar í þessu máli frekar en hvað við og Aþena séum erfið í samskiptum og við séum ekki húsum hæf.“