Fréttir

Ruslatunnugreifinn skákar öfgahægri manninum Farage í nýrri könnun

Mynd
Farage er í vondum málum.

Bretar eru almennt mun hrifnari af Ruslatunnugreifanum, Count Binface, en öfgahægri manninum Nigel Farage. Þetta sýnir ný skoðanakönnun.

Í nýrri könnun á vegum Ipsos kemur fram að Bretar vilja mun frekar að grínframbjóðandinn Count Binface vinni aukakosningarnar í Clacton í ágúst en Nigel Farage. Hafa ber þó í huga að könnunin var gerð á landsvísu en ekki í kjördæminu sjálfu, sem Farage sagði sig nýlega frá til að reyna að komast undan rannsókn á fimm milljón punda gjöf frá rafmyntamógúli.

Í könnuninni sem var gerð dagana 8. til 9. júlí kemur fram að 33 prósent vilja sjá Count Binface vinna en aðeins 21 prósent vilja sjá Farage vinna. 32 prósent vilja sjá hvorugan þeirra vinna og 13 prósent sögðust ekki vita hvern þeir vildu sjá vinna kosningarnar í Clacton.

Sé aðeins litið til þeirra sem tóku afstöðu til frambjóðendanna tveggja þá hefur Count Binface 61,1 prósenta fylgi en Farage 38,9 prósent.

Vilja að rannsókn á brotum Farage haldi áfram

Spurt var um fleiri atriði í könnuninni. Til dæmis vill mikill meirihluti Breta, það er 74 prósent, að eftirlitsnefnd þingsins rannsaki peningagjafirnar til Farage. En fari svo að Farage hafi betur gegn Binface í ágúst gæti nefndin kallað eftir annarri aukakosningu ef rannsóknin sýnir brot á reglum. En Farage reyndi að stöðva rannsóknina með því að segja af sér þingmennsku og bjóða sig aftur fram. Hafa ber einnig í huga að lögreglurannsókn er nýlega hafin á annarri peningagjöf til Farage.

Sjá einnig:

Ruslatunnugreifinn rýkur upp hjá veðbönkum – Er öfgahægri maðurinn Farage í vanda?

16 prósent töldu það hafa verið rétta ákvörðun hjá Farage að segja af sér til þess eins að bjóða sig aftur fram og sama hlutfall telur að hann hefði ekki átt að segja af sér. Meirihluti, 54 prósent, telja að hann ætti að segja af sér og koma ekki aftur.

Íhaldsflokkurinn „valdið“ en Græningjar „fólkið“

Farage reyndi að mála aukakosningarnar sem „fólkið“ gegn „valdinu“ en það sprakk í andlitið á honum þegar „valdið“ ákvað að bjóða ekki fram.

32 prósent telja það rétta ákvörðun hjá öðrum stórum stjórnmálaflokkum að bjóða ekki fram í kosningunum en 31 prósent telja að þeir hefðu átt að bjóða fram.

Einnig var spurt um hvaða flokkar eru „valdið“ og hverjir eru „fólkið“. Flestir telja að Íhaldsflokkurinn tilheyri valdinu, það er 62 prósent svarenda. 41 prósent telja að Verkamannaflokkurinn tilheyri valdinu.

Flestir Bretar telja Græningja tilheyra fólkinu, það er 39 prósent. 33 prósent telja Frjálslynda Demókrata tilheyra fólkinu og 28 prósent öfgahægri flokkinn Reform UK.