Fréttir

Hjólahvíslarinn hvetur fólk til að styðja við kaupmanninn á horninu eftir innbrot og rán- „Einstakt tækifæri á að láta mjög gott af okkur leiða“

Mynd
Hjólahvíslarinn Bjartmar Leósson.

Hjólahvíslarinn Bjartmar Leósson hvetur fólk til að styðja við kaupmanninn á horninu, nánar tiltekið eiganda handverksbakarísins Sweet Aurora Reykjavík, sem er á Bergstaðastræti 14, á horni Bergstaðastrætis og Spítalastígs.

Eigandinn, Aurore Pélier Cady, var búin að bjóða til fjögurra ára afmælisveislu föstudaginn 17. úlí með viðburði á Facebook. Í gær sunnudag var birt færsla í íbúahópnum Íbúar í miðborg um að brotist var inn á staðinn aðfararnótt sunnudags. 

„Brotist var inn síðustu nótt, þeir stálu miklu. Ég opna þess vegna seinna í dag.“

Á mynd sem birt var með má sjá að þjófurinn eða þjófarnir létu sér ekki nægja að stela heldur skemmdu einnig hluti.

Mynd

„Hér var framið innbrot og 150.000 krónum stolið sem kemur sér mjög illa fyrir konu í strembnum rekstri. Ég ætla að mæta þangað og kaupa mér eitthvað smáræði fyrir 5000 kall og segja henni að eiga afganginn, gefa smá tips. Væri geggjað ef þið öll væruð til í að beina viðskiptum ykkar þangað á næstu dögum til að hjálpa henni að vinna upp tapið. Við þurfum að standa með kaupmanninum á horninu, svona staðir gera borgina okkar betri. Sweet Aurora á horni Spítalastígs og Bergstaðarstrætis. 4 ára afmæli staðarins á föstudaginn. Koma svo krakkar, hér höfum við einstakt tækifæri á að láta mjög gott af okkur leiða.Lokað á morgun mánudag, en þá verður bara ennþá meira spennandi að mæta á þriðjudaginn og næstu daga,“

skrifar Bjartmar í færslu sem hann deilir í Facebook-hópunum Íbúar í miðborg og Hjóladót ofl tapað, fundið, en hann stofnaði sjálfur seinni hópinn. 

Sweet Aurora Reykjavík er lokað mánudaga, en opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 10-18 og sunnudaga frá kl. 10-17.

Þeir sem komast ekki á staðinn, en vilja leggja sitt af mörkum geta lagt inn á reikning Sweet Aurora Reykjavík:
Kennitala 6906210960
Reikningsnúmer 0133-26-004060

Í myndböndum sem birt voru í Facebook-hópnum Þjófar á Íslandi má sjá einn athafna sig á staðnum. 

Mynd