Fréttir

Snærós og Halldór Benjamín tókust á: „Mér finnst þetta ósmekklegt og ég ætla ekki að fara niður á þetta plan“

Mynd
Snærós Sindradóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson. Samsett mynd.

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Halldór Benjamín Þorbergsson, einn aðstandenda Áfram Ísland, mættust í Vikulokunum á Rás 1 í morgun. Evrópuhreyfingin eru samtök sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið en Áfram Ísland tala gegn því að aðildarviðræðurnar verði teknar upp að nýju, þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður fer fram 29. ágúst næstkomandi. Bæði félögin hafa það að markmiði að reka jákvæða kosningabaráttu. 

„Mitt plan var ekki að vera í þessu í sumar en það kemur mér skemmtilega á óvart að fólk sé tilbúið að leggja jafn mikið á sig, skrá sig til leiks. Leggja sinn tíma í þetta í júlí og ágúst þegar við eigum að vera á fótboltamótum, tjaldsvæðum og bæjarhátíðum,“ sagði Halldór Benjamín. 

Snærós fagnaði tilkomu Áfram Ísland en bæði félögin hafa það að markmiði að reka jákvæða kosningabaráttu.. „Ég hlakka til að sjá Halldór og hans félaga efna þetta loforð því hingað til hefur nei-hliðin verið að ata okkur auri með ýmsum hætti. Ég hef talað um það á TikTok, greinaskrif úti í bæ sem snúast um mín persónulegu fjármál og eru jafnvel hrein og bein lygi. Það er ánægjulegt að komin séu fram samtök sem ætla að gera þetta málefnalega,“ sagði hún. 

Sér hún fyrir sér að fleiri muni stíga fram á næstunni með sínar skoðanir á málinu, þar á meðal verkalýðsforkólfar. „Þjóðin er í framboði. Mér finnst mjög jákvætt að þingið verði ekki komið saman, ég held að það muni gera það að verkum að við sem erum almenningur í landinum fáum að hafa þetta málefnalegt og gott, ekki flokkspólitískt. Og alls ekki í skotgröfum sem fylgja einhverjum flokkslínum, þar sem er fólk er að velta fyrir sér næsta embætti sem það geti fengið eða hvaðeina.“

„Ég sagði það reyndar alls ekki“

Var því beint til Halldórs Benjamíns að ekki væru allir á sömu blaðsíðu hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um. „Ég er sammála því sem Snærós segir, þetta snýst um inngöngu í Evrópusambandið já eða nei.“

Greip hún orðið á lofti: „Ég sagði það reyndar alls ekki. Ég sagði að Evrópuhreyfingin trúði því að hagsmunum Íslands væri betur borgið innan Evrópusambandsins. Það breytir því ekki að við þurfum þá að segja já í ágúst, fara í samningaviðræður og svo kemur stóra spurningin.“

Halldór Benjamín segir byrjunina brösuglega, það sé ekki meirihluti fyrir málinu á þinginu, engin samstaða um málið sé hjá aðilum vinnumarkaðarins eða hjá seðlabankanum, á hann von á því að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri muni stíga meira fram síðar í ferlinu. Halldór telur að Evrópusinnar séu sumir að tala gegn betri sannfæringu, það hafi verið sest niður með spunameisturum og verið sé að keyra á því að það þurfi að fara í samningaviðræður. 

Snærós sagði spunameistara að störfum hinum megin línunnar sömuleiðis. Ræddu þau svo um hagstjórn og fór þá Snærós að ræða um stöðu almennings með krónuna, fólk muni kjósa eftir sínum hagsmunum ekki ímyndaðra hagsmuna hagsmunagæsluaðila eða sérhagsmunaafla. „Ég vona að þjóðin kjósi þannig, með sinni eigin buddu og eigin hagsmunum.“

Aldrei verið með há laun

Hún hafi aldrei verið launahá kona, launin hennar hafi aldrei náð upp í meðallaun í landinu, þegar gengið er fellt þá þýði það launalækkun fyrir alla. „Það svíður. En þeir sem eru í efsta laginu geta hækkað launin sín aftur. Þeir eru ekki bundnir af kjarasamningum, þeir eru ekki að bíða eftir janúar þegar loksins kemur 30 þúsund króna kjarabótin sem að samið er um í kjarasamningum,“ sagði hún. Hún hafi talað við fulltrúa úr verkalýðshreyfingunni um að hér séu öfl sem hreinlega veðji með verðbólgu. 

„Af því að þeir eru í verðtryggðu kerfi. Til dæmis félagið sem Halldór Benjamín stýrir, Heimar, sem eru með leigusamninga sem allir eru verðtryggðir þannig að þó að kostnaður félagsins sé ekki verðtryggður eða háður vísitölu, eins og laun og annað, þá eykst ágóði þessa fyrirtækis, gróði þessa fyrirtækis alltaf þegar verðbólga fer upp.“ 

Verðbólga éti upp laun og svo komi seðlabankastjóri sem skammi fólk fyrir að vera með of há laun. „Ég hef aldrei verið með of há laun, ég þekki ekki þennan veruleika sem að Halldór Benjamín lifir í og hans félagar.“

Halldór Benjamín tók ekki vel í þetta skot. „Það er með ólíkindum kyndugt að við tökum hérna kurteisar tíu mínútur í inngangi þessa þáttar, ég sagði á stofnfundi Áfram Ísland, að sama hvernig umræðan fer þá mun ég ekki fara ofan í þann drullupoll sem að Snærós er byrjuð að róta í,“ sagði hann. „Þrátt fyrir að hafa í inngangsorðum sagt að það yrði háð á persónulegum nótum, það yrði ekki farið í einstaklinga og nefndi sjálf, sem ég skil og er fullur samkenndar í hennar garð, að það er verið að ræða hennar persónulegu mál á netinu, hennar persónulegu fjármál. Þess vegna finnst mér þetta afskaplega ósmekklegt hvernig Snærós leyfir sér, þrátt fyrir þetta, að fara beint í mig.“

Skaut hún inn: „Ég er ekki að tala um þín persónulegu fjármál, ég er að tala um fyrirtækið sem…“

Hann hélt áfram. „Hún má halda áfram á þessum nótum ef hún vill. Ég er með sterk bein og þoli þetta allt saman. Þetta er nákvæmlega umræðan sem íslenska þjóðin nenni ekki að hlusta á, tengi ekki við þetta. Ef ég væri spunameistari þá myndi ég ráðleggja Snærósu að endurskoða þessa taktík. Mér finnst þetta ósmekklegt og ég ætla ekki að fara niður á þetta plan.“

Snærós botnaði svo með: „Sannleikanum er hver sárreiðastur.“

Hér má hlusta á þáttinn í heild.