Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi í uppsveitum Árnessýslu þann 4.júlí, lést fimmtudaginn 9. júlí á gjörgæslu Landsspítalans.
Konan ásamt karlmanni á áttræðisaldri fundust í tjaldi í Biskupstungum á Suðurlandi um hádegisbil laugardaginn 4. júlí. Karlmaðurinn var látinn þegar að var komið, en konan var flutt þungt haldin á gjörgæsludeild.
Sjá einnig: Fannst látinn í Biskupstungum
Málið er til rannsóknar hiá Lögreglunni á Suðurlandi. Fram kom í fyrri tilkynningu að málið sé rannsakað sem slys og sé meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða.