Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur vekur athygli á því að þrír mælar Veðurstofunnar mæli ekki sem best við staðalaðstæður.
„VAFASAMAR HITAMÆLINGAR
Nú næstu daga þegar von er á vænum hitamælingum og samanburði á milli staða, er rétt að vara við þremur mælum á vegum Veðurstofunnar norðaustan- og austanlands. Þeir mæla ekki sem best við staðalaðstæður eins og það er kallað.“
Segir Einar í færslu á Facebook að um sé að ræða mæla á Húsavík, Hallormsstað og Végeirsstað í Fnjóskadal.
„Allir eru þessir mælar umluktir skógargróðri. Á Hallormsstað og Végeirsstöðum hefur gróðurinn meira og minna fært mælistöðvarnar í kaf á síðustu 10-15 árum án þess að nokkuð hafi verið að gert. Á Húsavík var veðurstöðin færð frá höfninni fyrir nokkru og upp í Skrúðgarðinn í miðjum bænum. Þar er hún „falin“ á milli trjáa. Rétt að hafa þetta á bak við eyrað!
Svo eru flestar stöðvar Vegagerðarinnar ekki á graslendi, sem er ein krafan sem gerð er um staðalaðstæður við mælingar á hita.“