Fréttir

Sveinn Andri og Sólveig Anna tókust á: „Ég er ekki svo illa haldin af dogmatík“

Mynd
Sólveig Anna Jónsdóttir og Sveinn Andri Sveinsson. Samsett mynd.

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og einn stofnenda Áfram Ísland áttu í opinskáum umræðum um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu í þættinum Fram undan á Rás 2 í morgun. Sveinn Andri er hlynntur aðild en Sólveig Anna á móti. 

Til stóð að ræða það sem helst bæri í fréttum vikunnar en talið barst um leið að Evrópumálunum.

„Það er ljóst að minn gamli flokkur Sjálfstæðisflokkurinn sá það í hendi sér að Heimssýn væri ekki að virka, þau voru ekki að ná árangri, og voru þess vegna í samvinnu við Samtök atvinnulífsins að stofna Áfram Ísland, afkvæmi þeirra. Ég fór að hugsa mér hvers vegna Halldór Benjamín, Samtök atvinnulífsins og Sjálfstæðisflokkurinn væri að standa að þessu. Reyndi að kryfja þetta til mergjar í huganum. Ég velti því upp hver er ástæða þess að sterk fyrirtæki, og „auðvaldið“ svo ég noti kunnuglegt stef frá frænku minni…,“ sagði Sveinn Andri og má skynja í gegnum hljóðnemann að hann horfi til Sólveigar Önnu. 

„…vill ekki sjá samning yfir höfuð og aðildarviðræður við Evrópusambandið. Nefni nokkur dæmi, því við vorum bæði að koma frá útlöndum ég og Sólveig frænka mín, þá hagnast fjármálafyrirtækin um 20 milljarða á ári bara af kortanotkun almennings úti í löndum þegar verið er að svissa á milli evru og krónu. Fasteignafélög eins og það sem Halldór Benjamín stýrir, græða þeim mun meira eftir því sem vextir og verðbólga er hærri. Flest fyrirtæki í Evrópu verja sig fyrir verðbólgu og háum vöxtum en Heimar og fleiri fasteignafélög, maður sér þetta í ársreikningum, þeir beinlínis veðja á háa vexti og verðbólgu. Hækkun verðbólgu úr 5% í 10% það þýðir fjóra og hálfan milljarð bara í hagnað fyrir Heima.“

Hin hliðin séu háir vextir sem vinna fyrir fjármagnseigendur, þá veðji bankar á verðbólgu. „Þeir taka stöðu gegn almenningi með verðbólgunni í sinni spákaupmennsku. Samtök atvinnulífsins og samstarfsflokkurinn þeirra, Sjálfstæðisflokkurinn, vilja ekki virka samkeppni á Íslandi. Það er enn ein ástæðan. Bankarnir á Íslandi, olíufélögin, matvörukeðjurnar og tryggingafélögin, á engum þessum sviðum er virk samkeppni heldur gott og traust samráð sem hefur varað um áratugaskeið, á kostnað almennings.“

Sveinn Andri beindi svo orðum sínum að Sólveigu Önnu: „Þess vegna hef ég áhyggjur af Sólveigu, ég ber mikla virðingu fyrir henni og hennar baráttu,“ segir Sveinn Andri. „Ég hef áhyggjur af þessum félagsskap.“

Önnur kreppa óumflýjanleg

Sólveig Anna, sem var erlendis á opnunarfundi Áfram Ísland en einn stofnaðila samtakanna, segir að hún sé hvorki í Sjálfstæðisflokknum né Samtökum atvinnulífsins. Hún vill alls ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hún hafi byrjað að fylgjast með Evrópusambandinu eftir hrun og áhrif evrukreppunnar á lönd á borð við Grikkland. „Vegna þess að evran var þar gjaldmiðill hafði litla getu til að bregðast við þeim efnahagsáföllum sem dundu yfir nema með miklum niðurskurði, gríðarlegu háu atvinnuleysi og mikilli aðför að hagsmunum alþýðufólks, vinnandi fólks, og þar voru stofnanir Evrópusambandsins helstu leikendurnir í því að knýja á um hversu hrikaleg meðferðin var á fólkinu í Grikklandi. Svo var líka komið hrikalega komið fram við alþýðufólk á Spáni, Portúgal og Írlandi eins og ég vona að flestir muna.“

Í kjölfar þess að skoða þessi mál ofan í kjölinn varð það skoðun hennar að hagsmunum alþýðufólks væri best borgið utan Evrópusambandsins. „Ég hugsa með hryllingi til þess hvernig hefði verið farið fyrir íslenskri alþýðu hefðum við verið í Evrópusambandinu þegar hrunið gekk yfir,“ segir hún. „Það hefði verið óbærilegt fyrir jafn litla þjóð og við erum hér. Ég er mikil áhugamanneskja um kapítalismann þá veit ég að það er alveg öruggt að annað áfall mun ríða yfir. Kreppur og áföll eru byggðar inn í þetta kerfi sem við búum yfir hvort sem við viljum eða ekki. Fari svo að við verðum komin í Evrópusambandið og með evruna þegar þetta óumflýjanlega mun gerast þá munum við ekki hafa annað um að ræða en að ráðast með þessum ofsafengna hætti að lífskjörum alþýðufólks. Það vil ég ekki.“

Sveinn Andri skaut inn að hann telji víst að Halldór Benjamín stefni á að vera formaður Sjálfstæðisflokksins, Sólveig Anna segir að pólitík sé flókin og að fólk með ólíka hagsmuni geti sameinast um mál. „Ég er ekki svo illa haldin af dogmatík að geta ekki bundist samtökum með fólki sem ég er að öllu öðru leyti ósammála um hluti.“

Sveinn Andri skaut inn varðandi stöðu Sólveigar Önnu sem verkalýðsforingja, hagur alþýðunnar myndi vænkast við lægra matvælaverð, kostnað við ferðalög og fleira. Sólveig Anna: „Þetta eru miklar fullyrðingar.“ 

Hér má hlusta á umræðurnar í heild sinni.