Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að þrýst hafi verið á hana að tjá sig um fána. Er það gert í kjölfar skemmdarverks við Grafarvogskirkju þar sem íslensku fánalitirnir voru málaðir yfir hinseginfánann.
Málið hefur vakið mikla athygli og umræður. Er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu sem mögulegur hatursglæpur. Búið er að hreinsa stéttina og stendur til að mála hinseginfánann aftur á næstu dögum. Þá hafa samtökin Ísland Þvert á flokka boðað til samstöðufundar á sunnudaginn.
„Nú er enn eina ferðina verið að þrýsta á það að ég tjái mig um fána. Ég verð að viðurkenna að ég er orðin mjög þreytt á þessari endalausu fánaumræðu. Ég er líka orðin verulega þreytt á því að vera dregin í dilk í hvora áttina fyrir sig,“ segir Kristín Kolbrún í færslu á Facebook.
„Ég bauð mig fram í sveitastjórnarkosningunum því mig langaði að tala um málefni barna, fjölskyldna, leikskóla, skólamál og hvernig við getum gert samfélagið betra. En aftur og aftur snerist umræðan um fána. Fjölmiðlar vildu fá viðbrögð við fánum, stjórnmálin fóru að snúast um fána, frambjóðendur annarra flokka virtust ekki getað rætt skólamál nema þau snerust um fána og fóru þá að keppast um hver segir orðið “mannréttindi” sem oftast. Allt hitt komst ekkert að. Á meðan töpuðu málefni barna, fjölskyldna og annarra samfélagslegra áskorana athyglinni sem þau eiga skilið.“
Segir hún að á meðal umræðan sé um fána sé ekkert rætt um annað:
„Í því formi sem þessi umræða fer fram þessi dægrin er hún ekki gagnleg fyrir neinn. Hún skapar reiði, ýtir fólki út í skotgrafirnar og á meðan er nánast ómögulegt að eiga málefnalega umræðu um það sem skiptir fólk raunverulega máli.“
Þá þurfi fjölmiðlar, stjórnmálafólk og samfélagið allt að taka ábyrgð á hvernig talað sé saman.
„Við þurfum að reyna að hífa umræðuna upp á þroskaðra stig. Það eru alvöru vandamál sem bíða lausna. Það eru alvöru málefni sem við þurfum að ræða fyrir börnin okkar, fjölskyldurnar og líka fyrir hinsegin samfélagið,“ segir hún.
„Við eigum að geta átt þessar umræður af virðingu, án þess að fara strax í skotgrafir eða gera ráð fyrir því versta um fólk sem er ósammála okkur.“