Jón G. Hauksson ritstjóri Grafarvogur.net setur spurningamerki við að enn séu framkvæmdir á Hlemmi þegar viðhald á gangstéttum í úthverfum borgarinnar sé ábótavant. Í pistli sínum vitnar Jón til orða þáverandi formanns umhverfis- og skipulagsráðs sem sagði í fréttum RÚV heildarkostnað framkvæmdanna vera um tvo milljarða króna. Framkvæmdir hafa staðið yfir með hléum á Hlemmi frá 2022 og eru enn í gangi.
„Það verður að segjast eins og er að þær virðast engan enda ætla að taka og ætla má miðað við umfang þeirra að kostnaðurinn sé að nálgast þrjá milljarða króna og verði á þeim nótum þegar upp verði staðið,“ segir Jón í pistli sínum.
„Ágætt er að hafa miklar og stöðugar framkvæmdir í hverfi 101 í huga þegar rætt er um að viðhaldi á gangstéttum í úthverfum borgarinnar, eins og í Grafarvogi, Breiðholti og Árbænum, sé ábótavant.“
Hann segir að umræðan sé þörf þó að nýr meirihluti Hildar Björnsdóttur hafi brugðist skjótt við þegar kona á tíræðisaldri slasaðist þegar hjólastóll hennar lenti á misfellu á ójafnri gangstétt. Í kjölfarið urðu miklar umræður á meðal íbúa um að víða væri pottur brotinn þegar kæmi að viðhaldi gangstétta í úthverfum.
Við það tilefni sagði Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, í samtali við fréttastofu Sýnar að þörf væri á gangstéttarviðgerðum í Reykjavík fyrir allt að tvo milljarða. Það séu aðeins þær gangstéttir sem verst farnar eru.
Jón hrósar Hildi fyrir nýju gangstéttina við Langarima, þar sé nú nýr og sléttur 500 metra kafli. „Þær soga fé til sín stóru framkvæmdirnar, eins og við Hlemm.“