Fréttir

Hryllingur í háloftunum: Gluggi brotnaði og einn farþeginn sogaðist að hluta út

Mynd
Rannsókn er hafin á málinu.

Flugvél Ryanair þurfti að gera neyðarlendingu í Grikklandi eftir að einn glugginn í farþegarýminu brotnaði. Einn farþegi sogaðist að hluta til út um gluggann og sat þar fastur þangað til aðrir farþegar gátu togað hann til baka.

Breska sjónvarpsstöðin Sky News greinir frá þessu.

Flugvélin var á leið frá borginni Þessalóníki í Grikklandi til Memmingen nálægt Munchen í suðurhluta Þýskalands þegar óhappið átti sér stað á föstudag. Þurftu flugmennirnir að gera neyðarlendingu á sama flugvelli skömmu eftir flugtak en flugvélin var þá komin yfir Norður Makedóníu. Tók ferðin til baka um 20 mínútur.

Mikil hræðsla

Að sögn staðarmiðla í Grikklandi brotnaði bútur úr vélinni og skall utan í flugvélina. Brotnaði þá einn glugginn í farþegarýminu og loftþrýstingurinn féll.

Einn farþeginn, serbneskur maður sem sat við gluggann, sogaðist að glugganum og fór að hluta til út úr vélinni vegna gríðarlegs þrýstings. Mikil hræðsla greip um sig í flugvélinni. Náðu aðrir farþegar að toga hann til baka.

Gerðu lítið úr atvikinu

Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna að súrefnisgrímurnar dingluðu fyrir framan fólk vegna loftþrýstingsfallsins.

Ryanair, hið írska lággjaldaflugfélag, reyndi að gera lítið úr atvikinu. Í tilkynningu þess var sagt að vélin hafi þurft að gera neyðarlendingu eftir að gluggi í farþegarými „losnaði í flugi.“

„Lendingin var eðlileg og farþegarnir sneru aftur í flugstöðina,“ segir í tilkynningunni. „Einn farþegi bað um og fékk læknisfræðilega aðhlynningu á flugvellinum í Þessalóníki. Til þess að minnka tafir var önnur flugvél útveguð til þess að koma farþegunum til Memmingen.“

Fjórir á sjúkrahús

Viðbúnaður var gríðarlegur á flugvellinum. Slökkvilið, sjúkralið, lögregla og aðrir viðbragðsaðilar voru kallaðir út. Alls voru fjórir farþegar fluttir á sjúkrahús til athugunar en þremur sleppt fljótlega aftur. Flugmálayfirvöld í Grikklandi hafa tekið flugvélina afsíðis og hafið rannsókn á slysinu.