Dale Vince, mógúll í orkugeiranum, hefur boðist til þess að fjármagna framboð Ruslatunnugreifans, Count Binface, gegn öfgahægri manninum Nigel Farage í aukakosningum.
Breska blaðið The Telegraph greinir frá þessu.
Um fátt hefur verið meira talað í breskum stjórnmálum undanfarið en framboð Count Binface, sem útlit er fyrir að verði sá eini sem mætir Nigel Farage í aukakosningum í Clacton-On-Sea í sumar.
Farage sagði af sér þingmennsku til þess eins að bjóða sig fram aftur og „skora hin ráðandi öfl á hólm“ en enginn beit á agnið. Farage sér því fram á niðurlægjandi sumar þar sem hann mun þurfa að rífast við ruslatunnu til þess að halda þingsæti sínu og ef hann vinnur, sem er ekki öruggt, þá mun rannsókn á fjármálum hans halda áfram hjá eftirlitsnefnd þingsins.
Sjá einnig:
Ruslatunnugreifinn rýkur upp hjá veðbönkum – Er öfgahægri maðurinn Farage í vanda?
Nú hefur orkumógúllinn Dale Vince boðist til þess að fjármagna framboð Count Binface í Clacton. Vince er eigandi fyrirtækisins Ecotricity, orkufyrirtæki sem sérhæfir sig í endurvinnanlegum og grænum orkugjöfum. Svo sem vindorku, sólarorku og lífrænu gasi unnu úr sykurrófuúrgangi.
„Ég vil að Binface vinni, og ég er reiðubúinn að styðja hann – siðferðilega, munnlega og fjárhagslega ef hann vill það,“ sagði Vince við Telegraph.