Fréttir

Svona byssu fékk Kristrún frá Erdogan

Mynd
Mynd/Getty

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem var haldinn í Ankara. Nafn Kristrúnar er áletrað á byssuna að sögn tyrkneska miðilsins Koza24.

Um er að ræða Sarsilmaz SR 38 og er framleidd í Tyrklandi. Verðið á slíku vopni í Tyrklandi er í kringum 130 þúsund krónur. Tilgangurinn er ekki að þjóðarleiðtoginn eigi byssuna sjálfur heldur á hún að vera geymd á vegum hins opinbera eða sýnd á safni. 

Mynd

Allir leiðtogar sem sóttu ráðstefnuna fengu byssu að gjöf. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Antonio Costa, forseti Evrópuráðsins, munu hafa þegið gjöfina. Kristrún og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætla ekki að taka sínar sexhleypur með heim.

RÚV greinir frá því að tyrkenska sendiráðið í Osló taki við byssunni sem Kristrún fékk, verður hún gerð óvirk. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, skilaði sinni til tyrkneska sendiráðsins í Osló líkt og Kristrún. 

Uppfært 16:06: Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu var nafn Kristrúnar ekki áletrað á byssukúlurnar heldur einungis byssuna sjálfa.