Fréttir

Svandís gagnrýnir tvöföldun komugjalda: „Ný gjöld sem leggjast á fólk sem þarf hvað mest á þjónustunni að halda“

Mynd
Svandís Svavarsdóttir. Mynd/VG

Þann 1. ágúst næstkomandi tekur gildi reglugerð þar sem komugjöld á heilsugæslustöðvar hækka úr 500 krónum í 1.000 krónur, sama verð verður á sálfræðiþjónustu, leghálsskimanir og röntgenmyndir af brjóstum. Sem fyrr munu börn, aldraðir og öryrkjar ekki greiða neitt. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að gjaldið verði það sama og árið 2008. Þann 1. september verður tekið upp sérstakt komugjald fyrir þjálfun, þ.e. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun, verður það 1.500 krónur en 1.000 kr. fyrir aldraða og 500 kr. fyrir öryrkja. 

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Vinstri grænna, gagnrýnir þetta og segir tvöföldun komugjalda upp í þúsundkall marka þáttaskil í greiðsluþátttöku sjúklinga.

„Þegar ég gegndi embætti heilbrigðisráðherra lögðum við markvisst upp með að fara þveröfuga leið. Það var meðvituð stefna að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga og bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu,“ segir hún í færslu á Facebook.

„Við lækkuðum greiðsluþátttöku á mörgum sviðum. Komugjöld í heilsugæslunni voru lækkuð, þátttaka hins opinbera í lyfjakostnaði aukin, niðurgreiðslur tannlækninga fyrir börn, aldraða og öryrkja bættar og aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu styrkt.“

Þá segir hún komugjaldið sem tekur gildi 1.september vera grundvallarbreytingu. „Þar er á ferðinni grundvallarbreyting sem kemur fyrst og fremst niður á fólki sem þarf endurtekna og langvarandi þjálfun vegna veikinda, slysa eða fötlunar,“ segir Svandís.

„Kostnaður við heilbrigðisþjónustu kann að hafa aukist. En svarið á ekki að vera að færa sífellt stærri hluta kostnaðarins yfir á sjúklinga. Hér er ekki aðeins um verulega hækkun komugjalda að ræða heldur einnig ný gjöld sem leggjast á fólk sem þarf hvað mest á þjónustunni að halda.“