Fréttir

Ruslatunnugreifinn rýkur upp hjá veðbönkum – Er öfgahægri maðurinn Farage í vanda?

Mynd
Er Count Binface að fara á þing á kostnað öfgahægri mannsins Nigel Farage.

Breski öfgahægri maðurinn Nigel Farage, formaður Reform UK, ætlaði sér að „skora hin ráðandi öfl“ á hólm þegar hann sagði af sér þingmennsku til þess að bjóða sig strax aftur fram. En nú lítur út fyrir að hann takist aðeins á við ruslatunnu og líkurnar á að ruslafatan vinni aukast sífellt.

Farage sagði af sér þingmennsku fyrir tveimur dögum síðan. Ástæðan var sú að eftirlitsnefnd þingsins þjarmar að honum vegna peningagjafar frá rafmyntamógúli. Líkur eru á að nefndin kalli eftir aukakosningu í kjördæmi Farage, Clacton-On-Sea, eins og lög segja til um gerist þingmenn brotlegir.

„Hin ráðandi öfl“ mæta ekki

Farage ætlaði sér að „skora hin ráðandi öfl“ á hólm og „láta kjósendur í Clacton“ sjá um að skera úr um sekt eða sakleysi hans. Þetta virðist þó ætla að springa í andlitið á honum því að enginn af hinum stóru stjórnmálaflokkunum sendu frambjóðanda í kosninguna og eftirlitsnefndin mun halda áfram rannsókninni verði Farage endurkjörinn. Þá gæti þurft að halda enn aðra aukakosninguna í Clacton.

Það sem verra er fyrir Farage þá virðist hans eini mótherji í aukakosningunni ætla að verða ruslatunnugreifinn, Count Binface, grínframbjóðandi leikinn af Jonathan David Harvey með ruslatunnu á höfðinu og ekkert nema bull málefni eins og að þjóðnýta Adele og byggja eitt stakt hús á viðráðanlegu verði.

Það sem meira er, þá hefur Count Binface verið að rísa hratt hjá veðbönkum.

Öruggur sigur eða hvað?

Clacton-On-Sea er lítill bær í Essex við suðausturströnd Englands. Meðalaldur er hár og meðaltekjur lágar, gósenland fyrir Reform UK sem gerir út á andúð við útlendinga, hinsegin fólk og aðra minnihlutahópa.

Farage hlaut þar 46,2 prósent atkvæða í þingkosningunum árið 2024 á meðan frambjóðandi Íhaldsflokksins hlaut 27,9 prósent og frambjóðandi Verkamannaflokksins 16,2 prósent.

Hafa ber í huga að Farage hefur engin tengsl við Clacton en vann þar öruggan sigur. En hvernig fer kosning þar sem aðeins hann og einn annar frambjóðandi eru í boði? Jafn vel þó að slíkur frambjóðandi sé talandi ruslatunna?

Binface á flugi

Veðbankar eru enn þá á því að Farage sé langlíklegastur til þess að vinna. Það er með líkurnar 1/6 eða 85,7 prósent hjá Oddschecker. En Count Binface, sem flestir myndu fyrir fram telja að ætti engar líkur á að vinna, er skyndilega kominn með stuðulinn 6/1, það er 14,3 prósent líkur.

Það sem meira er þá virðist meðvindurinn vera með honum en 25 prósent af öllum veðmálum eru á greifann.

Hjá sumum veðbönkum er stuðulinn enn þá lægri á Count Binface. Það er 9/2 hjá Bet365 sem jafngildir 18,2 prósentum. Hjá BetMGM er stuðullinn 5/1 eða 16,7 prósent.

Hafa ber í huga að kosningaþátttaka árið 2024 var aðeins 58,7 prósent í Clacton. Fari svo að stuðningsmenn allra annarra flokka, og hatursmenn Nigel Farage, sameinist um Count Binface og mæti vel á kjörstað þá er ekki óhugsandi að hið óhugsandi gerist.