Fréttir

Lögreglumaður í vondum málum eftir að hann skildi tvo lögregluhunda eftir í bíl í sjö klukkutíma

Mynd
Rip og Boomer voru meðvitundarlausir í bílnum. Mynd/Lögreglan í Salem sýslu

Bandarískur lögreglumaður á fimmtugsaldri er í vondum málum eftir að tveir lögregluhundar dóu úr hitaslagi. Lögreglumaðurinn skildi þá eftir í bíl í sjö klukkutíma í miklum hita.

Hinn 41 árs gamli lögreglumaður Cody Henderson frá New Jersey hefur verið ákærður fyrir vanrækslu og dýraníð eftir að tveir lögregluhundar dóu í lögreglubíl hans. Hundarnir, Rip af tegundinni Belgian Malinois og Boomer sem var English Springer Spaniel hundur, voru í hans umsjá.

Eins og í ofni

Lögregluhundar sinna ýmsum verkum svo sem að þefa uppi fíkniefni, sprengiefni og leita að týndu fólki. Einnig aðstoða þeir stundum við handtökur á glæpamönnum. Oft er talað um að lögregluhundar séu lögregluþjónar ekki síður en mannfólkið.

Henderson skildi Rip og Boomer eftir í lögreglubíl fyrir utan réttarhús þann 29. maí síðastliðinn frá klukkan 8:30 um morgunin til klukkan 15:30 síðdegis. Bíllinn var ekki í gangi, gluggarnir voru lokaðir og slökkt var á hitavara sem á að vernda hunda í bílum. Þar að auki er hundageymsla í réttarhúsinu sem auðveldlega hefði verið hægt að nýta.

Hitaslag

Hundar, sérstaklega þeir sem eru með þykkan feld, eru mjög viðkvæmir fyrir hita. Fái þeir hitaslag geta þeir auðveldlega týnt lífinu. Það er nákvæmlega sem kom fyrir Rip og Boomer.

Henderson fann þá meðvitundarlausa þegar hann kom aftur í bílinn. Fór hann með þá á dýraspítala en það var of seint. Þeir voru báðir dauðir. Krufning þeirra sýndi fram á hitaslag.

Hluti af löggæslu fjölskyldunni

Í tilkynningu lögreglunnar er dauði Rip og Boomer harmaður. „Þessir einstöku hundar vörðu lífi sínu í að þjóna og verja íbúa Salem sýslu og voru vel metnir meðlimir í löggæslufjölskyldunni,“ segir í tilkynningunni.

Henderson hefur verið leystur tímabundið frá störfum á meðan málið er í gangi. Hann hefur þegar verið ákærður fyrir dýraníð og vanrækslu.