Sífelldur og undarlegur landafræðiruglingur Donald Trump Bandaríkjaforseta er farinn að valda því að margt fólk er byrjað að efast um getu hans til þess að stjórna landinu. Nýlega ruglaðist hann á Íran, sem Bandaríkin eru í stríði við, og Japan.
Landafræði er viðkvæmt efni þegar um að er að ræða heimspólitíkina. Því er ljóst að Bandaríkjaforseti þarf að vera með helstu atriði nokkurn veginn á hreinu, en sem stórveldi eru Bandaríkin með puttana í málum flestra heimshorna.
Landafræðikunnátta Donald Trump virðist hins vegar vera á pari við leikskólabarn. Bæði hvað varðar heiminn og Bandaríkin sjálf.
Eftir enn eina vandræðalegu ræðuna þar sem hann ruglaði saman löndum hefur hann verið uppnefndur „vitlausasti forseti sögunnar“ og hafa margir velt vöngum yfir því hvort það þurfi ekki að grípa í taumana og virkja 25. grein stjórnarskrárinnar, sem fjallar um hvernig skuli koma forsetum frá sem geta ekki lengur sinnt skyldum sínum.
„Við skutum 111 flugskeytum að íslamska lýðveldinu Japan. Þeim var skotið úr flugmóðurskipi á einum klukkutíma,“ sagði Trump á NATO fundinum í Ankara í Tyrklandi.
Vitaskuld var um að ræða Íran sem Bandaríkjamenn hafa átt í stríði við síðan í febrúar. Engu að síður ráku margir upp stór augu.
Málið er langt frá því að vera einsdæmi. Trump hefur margoft ruglað saman löndum og svæðum svo að eftir er tekið í alþjóðasamfélaginu.
Í frétt breska blaðsins The Mirror eru nokkur þeirra rakin. Listinn er alls ekki tæmandi.
Grænland eða Ísland
Trump hefur lengi girnst Grænland og haft í hótunum við Grænlendinga og Dani. Íslendingum brá í brún þegar hann ruglaði Grænlandi saman við Ísland í janúar síðastliðnum.
„Þeir eru ekki til staðar fyrir okkur á Íslandi, það get ég sagt ykkur. Ég meina, hlutabréfamarkaðurinn okkar féll í fyrsta sinn í gær vegna Íslands. Þannig að Ísland hefur kostað okkur nú þegar mikla peninga,“ sagði Trump.
Veggurinn í Colorado
Árið 2019, á fyrra kjörtímabili Trump, sagðist hann ætla að byggja vegg í Colorado til þess að innflytjendur frá Mexíkó kæmust ekki inn í landið. Colorado er inni í miðjum Bandaríkjunum og um 1800 kílómetrum frá landamærum Mexíkó.
„Við erum að byggja vegg í Nýju Mexíkó og við erum að byggja vegg í Colorado og við erum að byggja vegg í Texas,“ sagði hann á viðburði í Pennsylvaníu.
Azerbaijan og Albaníustríðið
Donald Trump gortaði sig af því að hafa „leyst“ stríðið á milli Azerbaijan og Albaníu í fréttaútsendingu Fox News. Sagði hann stríðið hafa verið óleysanlegt þangað til hann steig fram.
„Aserbaijan og Albanía, það var í gangi í mörg mörg ár, ég fékk forsætisráðherrana til mín á skrifstofuna,“ sagði Trump.
Væntanlega á hann við Aserbaijan og Armeníu stríðið, það er um Nagorno-Karabakh, sem „leystist“ þegar Aserar réðust þar inn og innlimuðu svæðið en Armenarnir sem bjuggu þar flúðu burt.
Landamæri Írans og Katar
Fyrir aðeins mánuði síðan, á G7 fundinum í Evian í Frakklandi, bullaði Trump um landafræði Miðausturlanda þar sem hann háir blóðugt stríð. Það er þegar hann var að ræða um málefni Katar, sem sæta hermdarárásum frá Íran vegna tengsla við Bandaríkin.
„Þau eru næst Íran, svo ég tók eftir því að þau þurftu að ferðast um 45 mínútur til að komast þangað frá öðrum löndum. En þið gætuð þið gengið beint yfir landamærin, svo þið eruð í hættulegri stöðu,“ sagði Trump.
Katar á engin landamæri við Íran. Aðeins við Sádi Arabíu.
Borgin Belgía
Á kosningafundi árið 2016 í Atlanta í Georgíufylki sagði Trump Belgíu vera borg. Fallega borg.
„Belgía er falleg borg,“ sagði hann.
Eins og flestir vita þá er Belgía land.