Hinar grímuklæddur vígasveitir ICE hafa valdði enn einu dauðsfallinu í Bandaríkjunum. Nú mann að nafni Lorenzo Salgado Araujo sem ICE liði skaut til bana í borginni Houston í Texas fylki.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Síðan að Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf hinum grímuklæddu vígasveitum lausan tauminn til að ráðast gegn innflytjendum hafa þær valdið miklum usla og nokkrum dauðsföllum.
Drápið á Araujo átti sér stað í gærmorgun í aðgerð ICE. Samkvæmt ICE neitaði Araujo að stöðva bíl sinn og klessti á bíl ICE-liða. Hafi því einn þeirra skotið hann í sjálfsvörn.
Araujo var fluttur á spítala þar sem hann var skömmu síðar úrskurðaður látinn.
Sjá einnig:
Vígasveitir ICE áreita og handtaka innfædda Bandaríkjamenn
Nokkrum klukkustundum síðar birti Ronaldo Salgado, sonur hans, færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann dró lýsingar ICE í efa.
„Faðir minn, Lorenzo Salgado Araujo, vinnusamur mexíkóskur maður, var maðurinn sem var drepinn af ICE í morgun í austurhluta borgarinnar,“ sagði Ronaldo. Faðir hans hafði búið í Bandaríkjunum í 35 ár og unnið byggingarvinnu til að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Hann hafi verið að sækja vinnufélaga sína þegar hann var skotinn. „Faðir minn átti þetta ekki skilið,“ sagði hann.
„Þetta er ekki einangrað tilfelli,“ sagði Roman Palomares, forseti LULAC, samtaka Bandaríkjamanna af latneskum uppruna. „Við höfum séð mynstur þess að ICE notar skotvopn og óheft ofbeldi í aðgerðum sínum. Í hvert sinn sem fjölskylda er skilin eftir án svara verður samfélagið óttaslegið.“