Íslenski fáninn var málaður yfir fána hinsegin fólks sem hefur skreytt tröppurnar við Grafarvogskirkju undanfarin misseri, en um skemmdarverk í óleyfi kirkjunnar er að ræða sem er nú rannsakað sem hatursglæpur. Lögreglan hefur nú í höndunum myndefni þar sem tveir aðilar sjást við verknaðinn. Þetta kemur fram í eftirfarandi tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér vegna málsins:
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar mál sem varðar eignaspjöll á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju en málað var yfir fánann með íslensku fánalitunum síðastliðna nótt. Málið er rannsakað sem hatursglæpur.
Lögregla hefur myndefni undir höndum þar sem tveir aðilar sjást við verknaðinn.
Rannsókn málsins miðar vel en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.“