Karl III Bretlandskonungur hefur mildað dóm Ruth Ellis, síðustu konunnar sem var hengd í Bretlandi í lífstíðarfangelsisdóm. Ákvörðunin kemur þó 71 ári of seint fyrir Ellis sjálfa.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
David Lammy, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, greindi frá þessu í umræðum í breska þinginu í dag. Það er að konungur hefði mildað dóm Ellis úr dauðadómi yfir í lífstíðar fangelsisdóm.
Hin 28 ára Ellis, sem var frá litlu sjávarþorpi í Wales, var síðasta konan sem var tekin af lífi í Bretlandi, það er með hengingu þann 13. júlí árið 1955. Ellis var fundin sek um að skjóta til bana kærasta sinn, kappakstursmann að nafni David Blakey, rúmum þremur mánuðum áður, þann 10. apríl árið 1955. Blakey var ofbeldisfullur og hafði Ellis meðal annars misst fóstur eftir að hann kýldi hana í magann.
Ellis játaði að hafa skotið Blakey til bana og var dæmd á aðeins 20 mínútum. Hún vildi ekki að reynt yrði að milda dóminn yfir sér en fjölskylda hennar barðist fyrir því. Líklegt hefði verið að Ellis hefði getað fengið mildun en aðeins um helmingur allra dauðadóma enduðu með hengingu á þessum árum.
Málið olli ólgu í Bretlandi og var stór þáttur í því að dauðarefsingar voru afnumdar í landinu. Engin kona var tekin á lífi eftir þetta og síðustu karlarnir voru teknir af lífi árið 1964. Árið 1969 var dauðarefsing afnumin í landinu.
Upp úr aldamótum hófst barátta fyrir því að dauðarefsing Ruth Ellis yrði milduð og hefur það nú verið gert. „Réttlætinu hefur loksins verið fullnægt,“ sagði barnabarn hennar þegar þetta varð ljóst.