Fréttir

RÚV braut ekki siðareglur í frétt um Pál og Pál

Mynd

Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum blaðamanna þegar fjallað var um grein Berlingske um samskipti blaðamanns við Samherja, skipstjórann Pál Steingrímsson og bloggarann Pál Vilhjálmsson. Þetta kemur fram í úrskurði Siðanefndar Blaðamannafélagsins.

Í fréttinni, sem var síðar uppfærð, var upphaflega haft eftir Helga Seljan í frétt Berlingske að Páll Steingrímsson hefði hótað honum og öðrum blaðamönnum minnst þrisvar sinnum í tengslum við umfjöllun hans um Samherjamálið. Rétt er að haft var eftir honum að Páll hafi ítrekað sent honum og öðrum blaðamönnum óbeinar hótanir. 

Geti haft áhrif á mannorð hans

Í kærunni til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands segir að „slík fullyrðing feli í sér alvarlega ásökun sem geti haft veruleg áhrif á mannorð viðkomandi og gefið lesendum til kynna að viðkomandi hafi gerst sekur um refsiverða, eða í það minnsta mjög ámælisverða háttsemi“. 

Þar að auki hafi RÚV ekki gefið kost á andsvörum. „Þær ásakanir sem birst hafi í greininni, gegn kæranda sem þar var nafngreindur, hafi verið þess eðlis að nauðsynlegt hafi verið að leita eftir afstöðu kæranda áður en greinin var birt. Það hafi hins vegar ekki verið gert,“ segir í kærunni. Þar að auki hafi liðið klukkustund frá því óskað var eftir leiðréttingu en fréttin hafi ekki verið uppfærð fyrr en átta dögum síðar. 

RÚV hafi verið grunlaust um breytingu Berlingske 

Í andsvörum segir að RÚV hafi fengið drög að frétt sem til stóð að birta í danska dagblaðinu Berglingske Tidende, til að vinna úr henni frétt til birtingar í miðlum RÚV. Umfjöllun RÚV hafi því falið í sér endursögn á frétt Berlingske, fremur en frumvinnslu á frétt. Hins vegar hafi þau drög sem kærðu unnu úr haft eftir Helga Seljan að kærandi hafi hótað honum og öðrum blaðamönnum minnst þrisvar sinnum, en að í lokaútgáfu greinar Berlingske hafi orðalagi að þessu leyti verið breytt á þá leið að þar var talað um óbeinar hótanir.

Er svo vísað í tölvupóst frá Páli Steingrímssyni sem í hafi staðið: „[hafi] aldrei hótað Helga Seljan, sendi honum mail núna 15 apri og í því voru spurningar til hans, svo ég óska eftir því að því sé komið á framfæri og það leiðrétt að ég hafi hótað honum“. Þannig hafi ekki komið fram ósamræmi við frétt Berlingske. 
„RÚV hafi því verið grunlaust um þá breytingu sem gerð var á frétt Berlingske frá þeim drögum sem hin kærða umfjöllun var unnin úr og fram að birtingu endanlegrar útgáfu Berlingske. Því hafi fréttastjóri tjáð kæranda að hin kærða frétt væri unnin upp úr umfjöllun Berlingske og að hann þyrfti að beina umkvörtunum sínum þangað,“ segir í úrskurði siðanefndar. 

„Hins vegar, þegar kærandi hafi svarað því til að ósamræmi væri á milli umfjöllunar RÚV og umfjöllunar Berlingske, hafi hin kærða frétt verið leiðrétt eftir nánari eftirgrennslan, ásamt því að birt var afsökunarbeiðni. Upphafleg frétt hafi ekki verið að öllu leyti nákvæm, að því leyti að vísað var til hótana en ekki óbeinna hótana. Sú misfella hafi hins vegar átt sér eðlilegar skýringar og verið leiðrétt svo fljótt sem RÚV var kunnugt um hana.“

Í umfjöllun nefndarinnar segir að í umfjöllun RÚV hafi ekki verið fullyrt að kærandinn hafi haft í hótunum. „Það eina sem er fullyrt er að Berlingske hafi það orðrétt eftir viðmælanda að hann segi kæranda hafa hótað sér. Það að orðalag umfjöllunar Berlingske hafi breyst á þá leið sem að framan er lýst, þannig að fullyrðingin sé um óbeinar hótanir, fremur en að því orði sé sleppt, hefur að mati Siðanefndar takmarkaða þýðingu við þessar aðstæður.“