Óskar Steinn Ómarsson, baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks, segir mikilvægt að leyfa ekki pópúlískum stjórnmálamönnum og áhrifagjörnum unglingum að vopnvæða þjóðfána Íslands. Það hafi unglingar úr Miðflokksæskunni gert með skemmdarverkum í Grafarvogskirkju í nótt.
Eins og greint hefur verið frá var skemmdarverk unnið á hinsegin fánanum á tröppum Grafarvogskirkju í nótt. Íslensku fánalitirnir voru málaðir yfir en Guðrún Karls Helgudóttir biskup sagði þetta reyndar frekar líkjast fána Grænhöfðaeyja. Verður hinsegin fáninn málaður aftur yfir skemmdarverkin.
„Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni að helsta sameiningartákn okkar Íslendinga - þjóðfáninn - hefur undanfarið verið nýttur af stjórnmálamönnum til að senda miður skemmtileg en hnitmiðuð pólitísk skilaboð,“ segir Óskar Steinn sem hefur um árabil barist fyrir réttindum hinsegin fólks, meðal annars í sínum heimabæ Hafnarfirði þar sem hann situr sem varafulltrúi í fræðsluráði.
Vilhjálmur Árnason og Miðflokkurinn í Kópavogi
Óskar Steinn beinir spjótum sínum að Vilhjálmi Árnasyni nýjum bæjarstjóra í Reykjanesbæ og Miðflokknum í Kópavogi í þessu samhengi.
Sjá einnig:
Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta fjarlægja regnbogafána við alla skóla í bænum
„Það var t.d. engin tilviljun að nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar hafi fyrirskipað að íslenska fánanum skyldi flaggað við allar stofnanir bæjarins á sama tíma og hann lýsti því yfir að bærinn myndi ekki hýsa fleiri hælisleitendur. Skýr skilaboð sem rötuðu beinustu leið til markhópsins,“ segir Óskar Steinn. „Í Kópavogi og víðar var fánanum okkar stillt upp af Miðflokknum sem mótsvari við regnbogafána fjölbreytileikans í grunnskólum. Eins og stuðningur við hinsegin börn sé í andstöðu við þjóðarstolt. Eins og það sé dyggð að dýrka Ísland en synd að fagna frelsinu og fjölbreytninni sem gerir íslenskt samfélag svo gott.“
Unglingar úr Miðflokksæskunni
Óskar segir að í nótt hafi einhverjir unglingar úr Miðflokksæskunni farið á stjá og haldið vopnvæðingu fánans áfram. Ekki til þess að sameina heldur til þess að sundra.
„Niðurstaðan er táknræn: lafþunnu og ójöfnu lagi af íslenskum fánalitum tekst ekki að hylja regnbogann undir niðri sem brýst í gegn. Hinsegin fólk er til og verður áfram til,“ segir hann. „Mér þykir vænt um íslenska fánann og vil veg hans sem mestan. Ég fagna því að nú megi flagga allt sumarið. Auðvitað eigum við að reyna að halda í það sem við eigum sameiginlegt á tímum hnattvæðingar og aukinna fólksflutninga. Okkur ber skylda til að varðveita menningu okkar og tungumál. En það er ekkert íslenskt við það að hatast út í minnihlutahópa og það á ekkert skylt við föðurlandsást að nýta fánann okkar í þeim tilgangi.“