Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir tilhneiginguna til að fara í manninn en ekki boltann vera slæma og óttast hún ástandið í ágúst ef umræðan heldur svona áfram í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald á aðildarviðræðum um , þeir sem séu ósammála séu alls ekki á par við Adolf Hitler.
Hafrún vísar í ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, á stofnfundi samtakanna Áfram Ísland en sú ræða hefur vakið mikla athygli.
„Ég hef lengi hrifist af ræðusnilld Ólafs, óháð því hvort ég sé sammála því sem hann hefur fram að færa eða ekki. Framsaga hans er einfaldlega framúrskarandi og hefur verið lengi,“ segir Hafrún í færslu á Facebook.
„Ég hlustaði á þessa ræðu hans frá því í gær og ég verð bara að segja að mér fannst magnað að 83 ára gamall maður gæti haldið 30 mínútna ræðu blaðlaust þar sem hann hikaði ekki, færði rök fyrir máli sínu, var hnittinn og eitt leiddi af öðru. Ég held að það sé mjög erfitt að halda öðru fram en að þetta hafi verið vel flutt ræða, algjörlega óháð því hvort maður er já eða nei megin í lífinu eða hvort maður er til vinstri eða hægri. Sérstaklega í ljósi þess að maðurinn er orðinn svolítið gamall.“
En hún segir að ræðan hafi kallað fram það versta í umræðunni.
„Eftir stutt skroll í gegnum Facebook hef ég séð Ólafi, beint og óbeint, líkt við Hitler á tveimur þráðum. Sko Hitler! Minna má það ekki vera þegar maður þarf að berja niður þá sem eru ósammála manni eða manni mislíkar. Ýmis önnur fúkyrði og rugl má einnig lesa.“
Hún segist hafa fengið hroll þegar tilkynnt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.
„Þegar tilkynnt var um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu fékk ég eiginlega hroll. Ég sá fyrir mér mánuði af ógeðslegum leiðindum því það er fátt sem mér finnst leiðinlegra en ESB-þrætur. Ég gerði sem sagt ráð fyrir töluverðum leiðindum, en leiðindin eru eiginlega meiri en mig óraði fyrir, og enn eru tæpir tveir mánuðir í kosningar. Ég sé bara fram á óbærilegt sumar hvað þetta varðar.“
Hafrún segir að henni finnist þetta miður.
„Sérstaklega þykir mér miður þetta fullkomna óþol allt of margra fyrir því að aðrir séu á annarri skoðun en þeir sjálfir. Þetta er einhver pólarisering sem ég kann ekki við og minnir mig of mikið á umræðuhefðina vestanhafs nú um stundir.“
Augljóst sé að það séu kostir og gallar varðandi inngöngu Íslands í Evrópusambandið það sé fullkomlega eðlilegt að það séu skiptar skoðanir um það.
Það er allt í lagi að fólk segi frá skoðunum sínum og færi fyrir þeim rök. En þessi pólarisering og þessi tilhneiging til þess að fara í manninn en ekki boltann er ekki góð. Ég óttast bara ástandið sem verður hér í ágúst ef þetta heldur svona áfram. Þjóðin verður kolfin í herðar niður og líklegt að margir hafi farið fullkomlega fram úr sér í öllum æsingnum með tilheyrandi leiðindum,“ segir hún og kemur með hvatningu.
„Koma svo fólk; vinsamlegast högum okkur almennilega og verum kurteis. Ef einhver er ósammála ykkur er hann mjög ólíklega fáviti og alls ekki á pari við Hitler!“