Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, telur að það að mála íslenska fánann yfir hinseginfánann við tröppur Grafarvogskirkju sé hófstilltari gjörningur en að skrifa eitthvað hatursfullt, ef hinseginfáninn væri málaður yfir þann íslenska myndi fólk telja það merkilegan og friðsamlegan gjörning.
Málið hefur vakið mikla athygli í dag og kallað fram hörð viðbrögð. Er það nú rannsakað sem hatursglæpur og sagði Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við MBL að það sé ljóst að minnst tveir voru að verki.
Sjá frétt: Netheimar loga vegna fánans við Grafarvogskirkju
Einar Jóhannes vakti mikla athygli fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor þegar birt var myndband af honum með hinseginfánanum við Smáraskóla. „Ef þú vilt frekar sjá íslenska fánann við skóla í Kópavogi settu þá like á þetta vídjó og kjóstu Miðflokkinn 16. maí,“ sagði í myndbandinu sem framboðið birti á samfélagsmiðlum. „Við í Miðflokknum viljum að það sé stefna í Kópavogi að einungis íslenski fáninn sem að flaggi við stofnanir. Þetta þarf ekki að vera flókið. Burt með vókið.“
Einar Jóhannes segir á X: „Ég er nokkuð sannfærður um að þessar tröppur séu eitthvað stunt. Eiginlega of vel málað til að vera framkvæmt af einhverjum random unglingum að næturlagi. Kannski gjörningur í skapandi sumarstörfum?“
Hann er þó ekki hlynntur að íslenski fáninn sé á jörðinni. „Og svo það sé sagt er ég ekki hlynntur því að gengið sé á íslenska fánanum þó ég skilji punktinn. Þetta er umtalsvert hófstilltari gjörningur en að skrifa antichrist eða eitthvað hatursfullt. Væri þetta öfugt myndu menn telja þetta merkilegan og friðsaman listgjörning,“ segir hann.
Hann bætir við á Facebook: „Ef einhver hefði málað framfarafánann yfir íslenska fánann er alls óvíst að sami tónn hefði verið sleginn. Þá hefðu margir eflaust talað um ögrandi gjörning, táknræna yfirlýsingu eða list í opinberu rými.“
Hann er þó ekki tilbúinn að fullyrða neitt. „Listrænn gjörningur í þeim tilgangi að framkalla einhver viðbrögð. Eins og ég segi, er NOKKUÐ sannfærður, ekki þannig að ég sé tilbúinn að fullyrða það. Svona eins og lögreglan ætti ekki heldur að vera tilbúin að fullyrða að um hatursglæp sé að ræða og rannsaka því málið sem slíkt.“