Fréttir

Egill minnist vinar síns – „Einn sannasti heimsborgari og menningarmaður sem ég hef kynnst“

Mynd
Björn og Egill kynntust um aldamótin og hittust reglulega í París þar sem Björn bjó um áratuga skeið.

Egill Helgason, fjölmiðlamaður, minnist vinar síns Björns Ólafs Ó. Ólafs arkitekts. Björn lést á heimili sínu í París þann 27. júní, 87 ára að aldri, eftir áratuga búsetu í borginni.

„Vinur minn Björn Ólafs arkitekt andaðist í hitunum miklu í París. Hann verður kvaddur við athöfn í París í dag,“ segir Egill í færslu á samfélagsmiðlum. „Björn var einn sannasti heimsborgari og menningarmaður sem ég hef kynnst.“

Björn vann að byggingarlist víða um heim en best þekkti hann París, þangað sem hann fluttist árið 1958.

„Mér er til efs að nokkur Íslendingur hafi þekkt heimsborgina betur,“ segir Egill. „Ég hefði viljað gera langa þáttaröð um París með Birni - og nú sé ég eftir því að það hafi ekki gerst.“

Egill segir að þeir Björn hafi kynnst frekar seint. Björn leitaði Egil uppi í kringum aldamótin og eftir það hittust þeir oft í París, þegar Egill og fjölskylda heimsóttu hann í íbúð í Rue Montorgueil í hjarta Parísar.

„Björn var alltaf forvitinn, setti upp sinn einstaka spurula svip, kíminn. Mér þótti afar vænt að heyra að eftir að honum fór að förlast aðeins hafi hann fylgst vel með sjónvarpsþáttunum mínum. Það er gott að hafa átt stað í huga hans,“ segir Egill. „Björn var feikilega vinnusamur maður og varð órólegur þegar hann hafði ekki næg verkefni. Eftir hann liggja glæsileg verk á sviði arkitektúrs og skipulags. Ég kann ekki vel að rekja það sem hann gerði erlendis, heill hverfi í París og byggingar í Kaliforníu og Egyptalandi, en hér heima má nefna Sjálandshverfið í Garðabæ og Bryggjuhverfið í Grafarvogi. Mér verður líka oft starsýnt á einstaklega fallega raðhúsalengju sem hann teiknaði við Látraströnd á Seltjarnarnesi – fallegustu hús á Nesinu. Sjálfur var Björn ættaður af Seltjarnarnesi. Við fjölskyldan kveðjum kæran vin með söknuði. Það verður öðruvísi að koma til Parísar þegar Björn er ekki þar til að spjalla við okkur og veita leiðsögn.“