Segja má að það logi netheimum eftir að íslenski fáninn var málaður yfir hinseginfánann við tröppur Grafarvogskirkju í nótt. RÚV hefur eftir séra Örnu Ýrr Sigurðardóttur að þetta hafi ekki verið gert á vegum kirkjunnar og á næstu dögum mun kirkjan safna saman fólki til að mála hinseginfánann aftur á tröppurnar.
Sjá frétt: Hinseginfáninn verður aftur málaður á tröppur Grafarvogskirkju
Vísir fjallaði um málið og hafa miklar umræður skapast í athugasemdum þar sem ýmist keppst við að lýsa yfir velþóknun á athæfinu eða það lastað.
Margrét Friðriksdóttir er meðal þeirra sem vill frekar hafa íslenska fánann á tröppunum:
„Miklu fallegra og táknar heildina ekki bara ákveðin hóp, takk fyrir.“
Gunnar nokkur svarar henni fullum hálsi og segir: „Einmitt. Frábært að fagna því þegar málað er yfir regnbogafánann í óþökk kirkjunnar. Mjög flott hjá þér.“
Ugla Stefanía Jónsdóttir segir það ekki rangt að kalla þetta skemmdarverk. „Sama hvað fólki finnst um tiltekna fána, þá er hér er um bersýnilegt skemmdarverk að ræða. Það er bæði vanvirðing við kirkjuna og íslenska fánann að nota hann í þessum annarlega tilgangi, og ætti fólk að sjá sóma sinn í að fagna ekki glæpsamlegu athæfi. Svona lögbrot er engum til framdráttar, og snýst augljóslega um fordóma og ekkert annað.“
Haraldur Dean Nelson finnst íslenski fáninn flotttur: „Finnst þetta reyndar mjög flott með íslensku fánalitunum.“
Gísli nokkur segir þetta vanvirðingu við íslenska fánann:
„Þetta er ekki einungis skemmdarverk á regnbogafánanum, heldur einnig hrikaleg vanvirðing við Íslenska fánann. Það er brot á fánalögum að klessa honum svona á einhverja götu, auk þess vantar þverröndina og þetta er svo illa málað að aðrir litir sjást í gegn um þann bláa á mörgum stöðum,“ segir hann. „Hver sem gerði þetta ber greinilega enga virðingu fyrir Íslandi, Íslenskri menningu eða hinum Íslenska fána.“
Guðmundur nokkur notaði tækifærið til að slá á létta strengi: „Er þetta ekki fáni Grænhöfðaeyja? Kannski einhver fótboltaaðdáandi að fagna góðu gengi eyjanna?“