Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, skýtur föstum skotum á Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf. Kristján hafi uppnefnt fólk Stalínista í gríð og erg en sagan kennir okkur að fáir menn í heimssögunni gerðu meira fyrir hvalveiðar en einmitt Jósef Stalín.
„Það er alltaf dálítið krúttlegt þegar fólki finnst eigin brandarar svo sniðugir að það endurtekur þá í sífellu,“ segir Stefán í færslu á samfélagsmiðlum.
Vísar hann í viðtal í gær þar sem Kristján uppnefndi Svandísi Svavarsdóttur og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, báðar fyrrverandi atvinnuvegaráðherrar, sem „Stalínista.“ Bendir Stefán á að með einföldu gúggli er hægt að sjá að Kristján gerði hið sama grín í viðtölum árin 2023, 2024 og 2025.
„Það er gott að menn kunni að meta eigin fyndni,“ segir Stefán en bendir á að Kristján eigi Stalín margt að þakka. „Annars er gaman frá því að segja að Sovétmenn hófu hvalveiðar sem alvöru atvinnugrein með fimm ára áætlun Jósefs Stalíns árið 1932 og voru orðnir stærsta hvalveiðiþjóð veraldar þegar leiðtoginn mikli dó snemma á sjötta áratugnum. Líklega hefur enginn stjórnmálamaður í sögunni greitt götu hvalveiða meira en félagi Stalín.“