Ragnar Erling Hermannsson, sem hefur verið áberandi málsvari heimilislauss fólks og barist fyrir hagsmunum þess, meðal annars í viðtölum við fjölmiðla, hvetur almenning til að ræna úr verslunum.
Þetta kemur fram í myndbandi sem Ragnar birti á Facebook-síðu sinni. „Núna ætlum við öll að fara með íþróttatöskuna okkar í XXX, í XXX, húsmæður, öryggisverðirnir eru ekki að fara að horfa á eftir ykkur, setjið í töskuna ykkar, í veskið ykkar, í körfuna, og dýrustu vörurnar beint í pokann.“
Sakar Ragnar verslanirnar um okur og segir það réttlæta búðarþjófnað í stórum stíl.
Þessi hluti í ræðu Ragnars hefst í kringum þriðju mínútu í myndbandinu.