Maður sem hellti yfir sig bensíni í kirkjugarði i Keflavík þann 18. maí og skaðbrenndist eftir samskipti sín við lögreglu, segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssuskoti.
Maðurinn heiti Mikkael Ingiberg Gunnlaugsson og steig fram í viðtali við RÚV í kvöld.
Mikkael brenndist illa á tæplega heflmingi líkamans í aðgerðum lögreglu á vettvangi. Hann segir við RÚV að mikilvægt sé að lögreglumenn fái betri þjálfun í notkun rafbyssa. Hann segir að kviknað hafi í sér út frá rafbyssuskoti.
„Ég var þarna í kirkjugarðinum, á helgri jörð. Ég var að fara með bæn fyrir látna einstaklinga sem voru mér kærir og ég sé síðan lögreglumenn nálgast mig að aftan og framan og fer í panikk,“ segir Mikkael.
„Mín viðbrögð voru bara haldið ykkur fjarri, hvað viljið þið og af hverju eruð þið á eftir mér?“ er ennfremur haft eftir honum.
Mikkael glímir við andleg veikindi. Hann var með kveikjara og brúsa með eldsneyti í vasanum sem hann segir að hafi verið ætlað vespunni verspunni hans.
Sjá nánar á vef RÚV.