Fréttir

Hryllingur á Vesturlandi: 12 mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn sambýliskonu sinni

Mynd

Héraðsdómur Vesturlands kvað 6. júlí 2026 upp dóm í máli þar sem ákærði var sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi gagnvart sambýliskonu sinni, á tímabilinu frá nóvember 2025 til mars 2026. Ákæran laut að því að hann hefði endurtekið og með alvarlegum hætti ógnað lífi, heilsu og velferð hennar með ofbeldi, sem fól meðal annars í sér högg í andlit, spark, hálstak og að þrýsta höfði hennar að hörðu yfirborði. Brotaþoli hlaut við þetta margvíslega líkamlega áverka, þar á meðal mar, sár, gripför á hálsi, áverka á höfði og blæðingu á hljóðhimnu, auk andlegra afleiðinga á borð við ótta og angist.

Ákærði játaði skýlaust sök fyrir dómi og samþykkti jafnframt bótakröfu brotaþola. Málið var því dæmt án frekari sönnunarfærslu samkvæmt reglum sakamálalaga. 

Þrátt fyrir játninguna ákvað dómari að skilorðsbinda ekki fangelsisrefsingu yfir manninum vegna þess hvað ofbeldið var alvarlegt og ítrekað, og hafði beinst að höfði og hálsi brotaþola, sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar. Dómurinn taldi þetta refsiþyngjandi. Á hinn bóginn var ákærða til málsbóta talið að hann hefði játað brotin greiðlega, samþykkt bótakröfuna og leitað sér aðstoðar vegna áfengisvanda.

Fram kom að ákærði hafði áður hlotið dóma fyrir ýmis brot, þar á meðal ofbeldis- og fíkniefnabrot. Þar sem brotin í þessu máli voru framin áður en fyrri dómur Héraðsdóms Vesturlands var kveðinn upp var refsing ákveðin sem hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga.

Dómurinn taldi hæfilega refsingu vera 12 mánaða fangelsi. Jafnframt var fallist á einkaréttarkröfu brotaþola og ákærða gert að greiða henni 4.400.000 krónur í miskabætur. Þá var honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins, þar með talið þóknun verjanda síns og réttargæslumanns brotaþola.

Dóminn má lesa hér