Fréttir

Vandræðalegt myndband Pútíns – Þóttist vera á vígvellinum en var í stúdíói

Mynd
Netverjar hafa hlegið að myndbandi Pútíns sem birt var á föstudag. Skjáskot/Youtube

Rússnesk stjórnvöld birtu á föstudaginn myndband sem átti að sýna Vladímír Pútín, forseta, heimsækja herforingja sína á fremstu víglínu. Myndbandið reyndist hins vegar ekki tekið upp á víglínunni og hefur reynst hið vandræðalegasta fyrir Pútín.

Í myndbandinu, sem er um 40 mínútur að lengd, má sjá Pútín klæddan í herbúning, nokkuð sem hann sést svo til aldrei í, gangandi eftir gangi sem er látinn líta út eins og bardagasvæði. Svo fundar hann með herforingjum um stöðuna á víglínunni. En á þeim fundi er fullyrt að rússneski herinn hafi náð bænum Kostyantynivka á sitt vald.

Fyrir utan það að umræddur bær er ekki á valdi Rússa þá var fólk fljótt að átta sig á því að myndbandið var eitt stórt leikrit og alls ekki tekið á víglínunni.

„Fullkomlega upplýstir gangar sem líta alls ekki út eins og þær drullugu, ísköldu holur sem alvöru rússneskir hermenn hreiðra sig um í. Hljóðvistin er svo hrein að þú gætir tekið upp hlaðvarp þarna inni. Jafnvel laufskrúðugi inngangurinn lítur út fyrir að hafa verið settur saman af leikmyndahönnuðum. Þetta er ekki stjórnstöð á vígvellinum,“ segir einn athugull netverji á samfélagsmiðlum eins og greint er frá í miðlinum The Express.

„Nýjasta „heimsókn Pútíns á vígvöllinn“ er hreint bíó – og ekki einu sinni gott bíó,“ benti annar á.

„Pútín á vígvellinum, aldrei! Þetta er fáránlegasti áróður sögunnar. Meira að segja Rússar hljóta að sjá að þetta er leikinn hernaðar gamanþáttur,“ segir sá þriðji.

„Ég velti því fyrir mér hversu oft þeir æfðu þetta?“ segir enn annar.