Myndband sem birt var á samfélagsmiðlum sýnir bíl á þjóðveginum keyra út af en ná að koma sér aftur inn á veginn. Ekki er vitað hvað olli aksturslaginu.
„Áminning. Ekki keyra þreytt,“ segir sá sem deildi myndbandinu á samfélagsmiðlinum Reddit. Á myndbandinu má sjá Camper bíl síga út af þjóðveginum en ná að koma sér aftur inn á hann áður en illa fer. Minnstu munar að bíllinn lendi á umferðarskilti.
Færsluhöfundur gerir ráð fyrir að ökumaður Camper bílsins hafi verið við það að sofna undir stýri. Í athugasemdum velta aðrir upp möguleikanum hvort að ökumaðurinn hafi verið í símanum, sem er ekki síður hættulegt athæfi.
„Hann var ekki lengur þreyttur held ég eftir þetta,“ segir einn. „Ef þú sendir sms og ekur eða ekur of þreytt/ur, þá ert þú eigingjarn/ur og setur aðra í hættu,“ segir annar.