Fréttir

Fimm meintir vændiskaupendur handteknir í Reykjavík í alþjóðlegum lögregluaðgerðum

Mynd

Fimm vændiskaupendur voru handteknir í Reykjavík í byrjun júní og afskipti voru höfð af 16 konum sem talið er að hafi verið gerðar út í vændi af kínverskum glæpasamtökum. 

Frá þessu greinir Europol, en um var að ræða alþjóðlegar lögregluaðgerðir sem báru heitið Global Chain, en þeim var stýrt annars vegar frá Makedóníu og hins vegar frá Brasilíu. Aðgerðirnar beindust sérstaklega að mansali, bæði vændismansali og mansali þar sem fólk er þvingað til að stunda glæpi og/eða betl. Europol tekur fram að rúmlega þúsund manns hafi verið handteknir í aðgerðunum, þar af 334 sem eru grunaðir um mansal, og eru ætlaðir þolendur rúmlega tvö þúsund talsins, langflestir konur. Af þessum fjölda voru 162 undir lögaldri. 

Rúmlega 40 þúsund manns tóku þátt í aðgerðunum, frá lögregluembættum, tollgæslu og landamæraeftirliti í 59 löndum. Þolendur eru sagðir koma frá 45 löndum.

Hér á Íslandi var eftirlit haft með tveimur stöðum þar sem talið var að vændi færi fram á vegum kínverskra glæpasamtaka. Rúmlega 50 meintir vændiskaupendur náðust á upptökur eftirlitsmyndavéla og voru fimm þeirra handteknir í aðgerðunum. Af sextán meintum þolendum á Íslandi voru tveir handteknir vegna ólöglegrar dvalar hér á landi. 

Nánar má lesa um málið hjá Europol