Fréttir

Einn sakborninga í Gufunesmálinu kominn í opið úrræði á Vernd

Mynd
Vernd fangahjálp. Mynd: Já.is.

Einn sakborninga í Gufunesmálinu, Matthías Erling Björnsson, afplánar nú eftirstöðvar dóms síns utan fangelsis, þ.e. á áfangaheimili Verndar. Þetta herma heimildir DV.

Matthías var ásamt þeim Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingvasyni sakfelldur fyrir að hafa ráðið Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, 65 ára gömlum manni frá Þorlákshöfn, bana, 10. mars árið 2025, en Hjörleifur lést eftir frelsissviptingu og miklar misþyrmingar. 

Matthías fékk 14 ára fangelsi fyrir sína hlutdeild í málinu en dómurinn var síðan mildaður í 12 ára fangelsi í Landsrétti. 

Sjá einnig: Landsréttur mildaði dóma í Gufunesmálinu

Fangar sem búa á áfangaheimili Verndar mega og eiga að stunda vinnu eða nám og eru undir eftirliti. 

Í lögum um fullnustu refsinga, 31. grein, segir að Fangelsismálastofnun geti leyft fanga að afplána hluta refsitímans utan fangelsis ef hann stundar vinnu, nám, starfsþjálfun eða meðferð sem stofnunin hefur samþykkt. Hann geti búið á sérstakri stofnun eða heimili sem Fangelsismálastofnun hefur gert samkomulag við og sé þar undir eftirliti.

Fangelsismálastofnun setur nánari reglur um afplánun utan fangelsis og á vefsíðu stofnunarinnar er að finna sérstakan kafla um áfangaheimili Verndar. Fangi sem býr á áfangaheimilinu skal dveljast þar milli kl. 23:00 og 07:00 alla daga vikunnar og auk þess milli kl. 18 og 19 á virkum dögum.

Áfrýjaði ekki dómnum

Samkvæmt heimildum DV heldur Matthías sig frá sjónum almennings sem kostur er, hann sinnir vinnu sem er þess eðlis að hann hann sést ekki í almannarými. DV hefur ekki upplýsingar um nákvæmlega hvert starfið er. Hann mun hafa sýnt af sér góða hegðun í fangelsi. Samkvæmt reglum mun hann dveljst í tvö ár á Vernd og síðan fara á ökklaband í eitt ár. 

Matthías var rétt tæplega 19 ára þegar hann framdi brotið en er tvítugur í dag. Hann mun ekki hafa áfrýjað dómi Landsréttar yfir sér til Hæstaréttar en það gerðu Stefán og Lúkas Geir auk stúlku sem sakfelld var fyrir hlutdeild í málinu. Þau hafa, samkvæmt heimildum DV, fengið áfrýjunaleyfi til Hæstaréttar sem tekur mál þeirra fyrir á næstu mánuðum. Að áfrýja ekki dómi er eitt af skilyrðum þess að geta afplánað utan fangelsis.

DV hafði samband við verjanda Matthíasar, Sævar Þór Jónsson hæstarréttarlögmann, sem vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en þetta: 

„Það er einfaldlega verið að fylgja þeim lögum og ferlum sem gilda um afplánun í réttarríki. Flutningurinn er eðlilegt skref samkvæmt reglum Fangelsismálastofnunar, en ég mun ekki tjá mig frekar um persónulega hagi umbjóðanda míns.“